Íslenski boltinn

Her­mann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“

Aron Guðmundsson skrifar
Hermann Hreiðarsson er spenntur fyrir komandi tímum hjá HK. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Hermann Hreiðarsson er spenntur fyrir komandi tímum hjá HK. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Mynd: HK

Her­mann Hreiðars­son, nýráðinn þjálfari karla­liðs HK í fót­bolta, segir það eitt af draumastörfunum sem að þjálfari getur fengið að taka þátt í upp­byggingu og fram­förum. Hann fær það verk­efni að reyna stýra liðinu strax aftur upp í Bestu deildina. Eyjamaðurinn og harðhausinn Her­mann setti það ekki fyrir sig að fara inn í hlýjuna í Kórnum.

Her­mann lét af störfum sem þjálfari karla­liðs ÍBV eftir nýaf­staðið tíma­bil þar sem að hann stýrði liðinu upp í efstu deild. Eyjamaðurinn var reiðu­búinn í að bíða þolin­móður eftir næsta starfi en var þó ekki lengi at­vinnu­laus því nú er hann orðinn þjálfari HK. Hann sér mögu­leika hjá liðinu sem féll ný­lega úr Bestu deildinni en Ómar Ingi Guðmundsson sagði upp störfum sem þjálfari HK eftir tímabilið.

„Stuttu eftir að Ómar lætur af störfum fæ ég sím­tal varðandi það hvort ég hefði áhuga á starfinu og væri til í að koma í við­tal,“ segir Her­mann varðandi að­dragandann að nýja starfinu. „Ég slæ til. Fer í viðtalið og er svo kallaður inn í annað við­tal nokkrum dögum síðar. Eftir það er svo sagt við mig að þeir myndu vera í sam­bandi við mig. Sem og þeir gerðu. Það var gengið til samninga og málið klárað núna síðastliðinn laugar­dag.“

Hermann og Hjörtur Þór Steindórsson formaður knattspyrnudeildar HK handsala samning sín á milliMynd: HK

„Ég var alveg til­búinn í að vera þolin­móður. Maður veit hvernig þessi bransi er. Það er ekkert gengið að því að hoppa strax í næsta starf. Ég var því alveg búinn undir það að það þyrfti ekkert að detta eitt­hvað strax inn. Þarna er rosa­lega flottur klúbbur á ferð, til­tölu­lega ungt félag og gaman að taka þátt í svona upp­byggingu og veg­ferð. Klúbburinn hefur alla burði til þess að taka fram­förum og þakið er ansi hátt þarna. Þetta er eigin­lega eitt af þeim draumastörfum sem þú færð. Að geta tekið þátt í upp­byggingu og fram­förum.“

Spennandi og skemmtilegt vinnu umhverfi

Her­mann skrifar undir þriggja ára samning í Kópa­voginum og veg­ferðin hefst í hinni feikna sterku Lengju­deild á næsta ári. Deild sem Her­mann vann með ÍBV í ár. Stefnan er sett á að gera HK að stabílu efstu deildar félagi.

„Það er langtíma­mark­mið. Það er klárt. Raun­hæft mark­mið. Óstöðug­leikinn er til staðar þegar að þú ert með marga unga leik­menn. HK hefur verið að gefa mörgum ungum leik­mönnum tækifæri og byggja þá upp fyrir framtíðina. Starfið sem að Ómar og fólkið í kringum hann hefur verið að skila af sér er frábært. Þeir eru að skila af sér flottu búi og margir leik­menn komnir með reynslu og smá smjörþef af leikjum í efstu deild og meistara­flokki. Það er gríðar­lega mikilvægt og ég held að allir í fót­boltanum hér á Ís­landi beri virðingu fyrir því.“

Fögnuður HK manna eftir leik í Bestu deildinni á nýafstöðnu tímabiliVísir/Pawel Cieslikiewicz

„Það geta ekki allir verið að keppa á toppnum en stefnan er fyrst og fremst að byggja upp betri og fleiri leik­menn. Geta tekið þátt í því sem að þau félög sem eru með flesta iðk­endur eru að gera. Selja fleiri leik­menn er­lendis. Að fleiri geti tekið næstu skref. Það er heildar­mark­miðið. Það er frábært fólk hjá HK og allir hungraðir í að gera þetta eins vel og hægt er. Þetta er gríðar­lega spennandi og skemmti­legt vinnu um­hverfi.“

Lykilmenn fara

Margir leik­menn HK eru að renna út á samningi og þeirra á meðal er fyrir­liðinn Leifur Andri Leifsson. Her­mann býst við því að ein­hverjir lykil­leik­menn hverfi á braut en fyllt verði í þau skörð.

„Það eiga sér alltaf stað ein­hverjar hreyfingar þegar að lið fellur. Ein­hverjir leik­menn sem vilja vera áfram í efstu deild. Það er öruggt að ein­hverjir leik­menn munu fara. Hvað Leif varðar þá er hann goðsögn í HK, auðvitað viljum við halda honum en þetta er í hans höndum.“ 

Leifur Andri í baráttunni í leik með HKVísir/Hulda Margrét

„Ég vissi það að hann væri að skoða sín mál. Yngri kjarninn verður áfram hjá okkur en klárt að ein­hverjir lykil­menn fara. Það verður fyllt í þau skörð sem þarf að fylla í. Svo fá fleiri ungir strákar stórt tækifæri. Það eru tækifæri fólgin í því að fara niður. Þú getur leyft fleirum að fá sénsinn. Það er alveg öruggt.“

Stefnan sett beint upp

Verk­efnið í Lengju­deildinni á næsta tíma­bili er ærið og fékk Her­mann að kynnast því með liði ÍBV á nýaf­stöðnu tíma­bili hversu erfið deildin er en aðeins efsta liðið fer beint upp í Bestu deildina á meðan að liðið í öðru til fimmta sæti berjast um hitt lausa sætið sín á milli í um­spili.

„Þetta var skemmti­leg deild í sumar og fyrir­komu­lagið vel heppnað. Þetta var lifandi alveg fram í síðustu um­ferð varðandi það hvaða lið færu í um­spilið og hverjir færu beint upp. Allir að vinna alla og tína stig hvort af öðru. Það eru mörg sterk lið í þessari deild. Flest lið gera til­kall í að fara upp. Við vitum að það er ekkert gefið í þessu. Það mun gilda á næsta tíma­bili. Þetta verður skemmti­legt og krefjandi verk­efni fyrir okkur, að koma okkur aftur upp.“

Hermann Hreiðarsson á hliðarlínunni sem þjálfari ÍBV á sínum tíma.Vísir/Hulda Margrét

Og er það ekki stefnan að fara strax aftur upp í Bestu deildina?

„Að sjálfsögðu. Stefnum beint að því að vinna deildina og koma okkur beint upp.“

Fer inn í hlýjuna

Eyjamaðurinn Her­mann hefur þá ímynd út á við að vera harður í horn að taka, hörku­töl og baráttujaxl sem virðist þrífast best í ekta ís­lenskum aðstæðum. Eins og frægt er orðið spilar HK sína heima­leiki inni í Kórnum sem fer mis­vel í aðila utan félagsins. Er það ekki dálítil and­staða við ímynd Her­manns að færa sig inn í hlýja loftið í Kórnum?

„Jú,“ segir Hermann og hlær. „En aðstaðan er frábær. Nýtt gervi­gras og maður getur treyst á sömu aðstæður. Það er nú svolítið nýtt. Að þurfa ekki að taka til­lit til veðursins fimm sinnum á dag. En vissu­lega æfum við úti líka. Þetta eru því ekki stórar breytingar. Það er höll í Vest­manna­eyjum líka þótt hún sé bara hálf, en aðal breytingin er sú að við vitum að hverju við göngum á heima­velli á leik­degi. Það er mjög jákvætt að geta staðið við eitt plan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×