Innlent

Sér­eign á­fram leyfð inn á lán og ekkert kílómetragjald

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Diljá Mist Einarsdóttir er formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Diljá Mist Einarsdóttir er formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Vísir/Vilhelm

Diljá Mist Einarsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, fagnar því að samþykkt hafi verið á þingfundi í dag að áfram verði heimilt að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á höfuðstól lána. Hún segir það heillaspor fyrir heimili landsins.

Sú heimild var við það að detta út um áramótin.

„Þetta er gríðarlega mikilvæg breyting sem hefur mikil áhrif á heimilin. Enda hafa fjölmargir haft samband við mig ekki síst ungt fjölskyldufólk. Þetta úrræði er svo mikilvægt af því að það eykur sparnað, minnkað skuldsetningu og þar með fjármálastöðugleika,“ segir Diljá.

„Þess vegna höfum við í Sjálfstæðisflokknum viljað einfaldlega hækka þessa fjárhæð sem er heimilt að nota til að greiða inn á lánin með þessum hætti,“ bætir hún svo við.

Hún segir málið ekki hafa verið umdeilt á þinginu en fagnar þó niðurstöðunum.

Kílómetragjaldi frestað

Þessi heimild var þó ekki það eina sem þingið tók fyrir í dag. Ákveðið var í dag að fresta töku á svokölluðu kílómetragjaldi. Efnahags- og viðskiptanefnd lagði til að frumvarpi um kílómetragjald af ökutækjum verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar og var það samþykkt.

Það þýðir að ekkert verður af afnámi ýmissa gjalda sem hefðu fallið út ef kílómetragjaldið hefði orðið að lögum. Því munu kolefnisgjald, olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald og almennt og sérstakt bensíngjald hækka um áramót, líkt og önnur gjöld.

„Við í rauninni vísuðum málinu til ríkisstjórnarinnar í heild sinni af því að þó að við gerum okkur velflest grein fyrir því að við þurfum að fara í kerfisbreytingu af því að við erum að sjá fram á svo gríðarlega minnkaðar tekjur sem gagnast fyrir vegina okkar að þá sáum við fram á það að geta ekki skoðað þessa hugmyndafræði nægilega vel, kafað nógu djúpt ofan í málið þannig að við frestuðum því fram til næstu ríkisstjórnar,“ segir Diljá.

Kolefnisgjaldið hækkað um minna en til stóð

Tillögur fjárlaganefndar voru þær að hækka kolefnisgjaldið en þó bara sem nemur rúmum helmingi þess sem upphaflega stóð til.

„Síðan verður farið í annars konar aðgerðir. Það er auðvitað umtalsvert aðhald í þessum fjárlögum en sömuleiðis frestun á einhverjum framkvæmdum og annað slíkt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×