Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. nóvember 2024 10:01 Sam Kerr og Kristie Mewis eiga von á barni á nýja árinu. Þjálfari Chelsea hefur komið Sam Kerr og Kristie Mewis til varnar eftir að þær fengu yfir sig holskeflu meiðandi athugasemda eftir að þær greindu frá því að þær ættu von á barni saman.
Á mánudaginn setti Kerr inn færslu á Instagram þar sem hún greindi frá því að Mewis væri ólétt. Færslan fékk misjöfn viðbrögð. Margir óskuðu þeim til hamingju en aðrir skildu eftir hómófóbískar athugasemdir við færsluna. Sonia Bompastor, þjálfari Chelsea, botnar ekkert í því fólki. View this post on Instagram A post shared by Sam Kerr (@samanthakerr20) „Ég vil styðja Sam. Ég styð við bakið á henni. Það er óásættanlegt að hafa svona athugasemdir, sérstaklega 2024. Mér er fyrirmunað að skilja hvernig fólk getur brugðist svona við,“ sagði Bompastor á blaðamannafundi. „Ég vil einblína á það jákvæða og styðja þær Sam og Kristie. Við erum mjög stolt af þeim og ánægð fyrir þeirra hönd. Sem mamma get ég ekki hugsað neitt annað. Sem kona er ekkert betra en að fá fréttirnar að þú eigir tækifæri á að verða mamma.“ Hin ástralska Kerr hefur leikið með Chelsea síðan 2020. Hún hefur fimm sinnum orðið enskur meistari með liðinu og þrisvar sinnum bikarmeistari. Mewis, sem er bandarísk landsliðskona, leikur með Dagnýju Brynjarsdóttur hjá West Ham United.
Enski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Michael Schumacher verður afi Formúla 1 Fleiri fréttir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Jackson komst upp fyrir Eið Smára Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Rice og Calafiori klárir en Crystal Palace verður án Eze Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Áfall bætist við ógöngur Man. City Króatíski metalhausinn á að bjarga málunum „Ekki það góður leikmaður miðað hvað við tölum mikið um hann“ „Höfum við séð tvo markverði spila jafn illa í sama leik?“ Tottenham áfram í undanúrslit eftir sjö marka leik með mörgum mistökum Loks búið að ganga frá sölu Everton Segir að það sé erfiðara að vera þjálfari en forsætisráðherra Hefði viljað að Rashford hefði talað við sig fyrir viðtalið Liverpool og Newcastle áfram í undanúrslitin Gabriel Jesus skaut Arsenal áfram í undanúrslitin Arne Slot viðurkennir að hafa reynt að hafa áhrif á dómarana Chelsea trúir á sakleysi Mudryks Lofar að óheppni Liverpool-nýliðinn spili í kvöld Barton ákærður „Við erum betri með Rashford“ Rashford til í að fara: „Tilbúinn í nýja áskorun“ Manchester United reynir að skrúfa fyrir lekann Sjá meira