Sport

HM gæti farið úr Ally Pally

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Áhorfendur í alls konar búningum setja svip sinn á heimsmeistaramótið í pílukasti.
Áhorfendur í alls konar búningum setja svip sinn á heimsmeistaramótið í pílukasti. getty/Zac Goodwin

Svo gæti farið að heimsmeistaramótið í pílukasti verði fært úr Alexandra Palace í London yfir í stærri höll.

HM hefur verið haldið í Alexandra Palace, eða Ally Pally eins og höllin er jafnan kölluð, undanfarin sautján ár. En breyting gæti orðið þar á.

Miðar á HM 2025 seldust upp á aðeins korteri og til að anna eftirspurn gæti mótið verið fært í stærri höll að sögn skipuleggjands þekkta, Barrys Hearn. Þá verður HM stækkað á næsta ári en keppendum fjölgar þá úr 96 í 128 og mótið lengist um fjóra daga.

„Fyrir HM í ár seldust níutíu þúsund miðar upp á fimmtán mínútum. Ég spurði mitt fólk á skrifstofu hversu marga miða hefði ég getað selt? Þau sögðu rúmlega þrjú hundruð þúsund. Það setur hlutina í annað samhengi. Svipað og þegar við fluttum úr Circus Tavern fyrir öllum þessum árum horfi ég núna á Alexandra Palace,“ sagði Hearn í viðtali á talkSPORT.

„Það komast bara 3.500 manns fyrir. Við verðum alltaf að vaxa. Ef þú slakar á ferðu aftur. Á næsta ári förum við úr 96 keppendum í 128. Fjórir dagar bætast við og átta holl og það eru auka 25.000 miðar. Fyrr en seinna ætti ég að horfa á þetta og segja: Eins og með snóker, þarf ég stærri höll. Ég get selt upp í hverja einustu höll í heimi. En get ég gert það fyrir 30-40 holl.“

Heimsmeistaramótið 2025 hefst 15. desember og lýkur 3. janúar. Luke Humphries á titil að verja en hann sigraði ungstirnið Luke Littler, 7-4, í úrslitaleiknum á síðasta móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×