Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. nóvember 2024 13:02 Það mun kenna ýmissa grasa í Draumahöllinni líkt og þessi mynd af setti ber með sér. Eva Rut Hjaltadóttir Grínistarnir Steindi jr og Saga Garðars munu rifja upp gamla takta í sketsaseríunni Draumahöllinni sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í desember og janúar. Steindi segist himinlifandi með að komast loksins aftur í að gera sketsaþætti eftir nokkurra ára hlé þó Draumahöllin verði enginn hefðbundinn sketsaþáttur. „
Það er svo langt síðan að við gerðum sketsaseríu þannig að við erum alveg fáránlega peppuð og tókum okkur líka fínan tíma í að skrifa þessa þætti,“ segir Steindi í samtali við Vísi. Saga Garðars segir að líklega sé ekki til fyndnari menn á Íslandi en þeir Steindi og Maggi. Stiklu úr þættinum má horfa á hér fyrir neðan en um er að ræða seríu þar sem margir óborganlegir karakterar koma við sögu, sumir oftar en einu sinni. Þættirnir eru skrifaðir af þeim Steinda og Sögu auk Magnúsar Leifssonar sem jafnframt leikstýrir þáttunum. Mikil gervi og stórir karakterar Steindi rifjar upp að þau Saga og Maggi hafi ætlað í tökur á þáttunum mun fyrr, þegar Saga hafi orðið ólétt. Þau hafi verið tvístígandi en ákveðið að bíða. Það hafi reynst gæfuríkt spor. „Það var eftir á að hyggja frábært en þá fengum við annað tækifæri til að skoða það sem við höfðum skrifað, gátum fínpússað þetta og lagað helling. Þannig að við erum hæstánægð með handritið að þáttunum og getum eiginlega ekki annað en lofað alvöru stemningu,“ segir Steindi eldhress eins og venjulega. Hann segir alls ekki um hefðbundna sketsaseríu að ræða. Þau hafi lagt mikið upp úr gervum og fengið marga af þekktustu leikurum landsins til liðs við sig í ýmsum aukahlutverkum. „Við Saga leikum alltaf aðalhlutverkin í öllum sketsunum og eru þetta oft karakterar sem verða heimsóttir aftur og aftur.“ Steindi segir samstarfið við þau Sögu og Magga hafa gengið vonum framar, enda hafi þau unnið mikið saman áður. „Við Saga höfum unnið saman í allskonar verkefnum og svo hef ég þekkt Magga í mörg ár, hann kom inn í Steindann okkar á sínum tíma enda alltaf að fá skemmtilegar hugmyndir. Það er svo gaman að vera mættur aftur með sketsaþætti, ég get ekki beðið eftir því að sýna fólki þetta og get ekki annað en lofað góðri stemningu,“ segir Steindi. Þríeykið skemmti sér konunglega við gerð þáttanna.Eva Rut Hjaltadóttir Ekki til sú hárkolla sem ekki var mátuð „Ég vil meina að Steindi sé besti leikari á Íslandi,“ segir Saga Garðars og eys lofi jafnframt yfir leikstjórann Magnús. „Fyrir utan hvað hann er fyndinn, þá hugsar hann líka svo sjónrænt fyndið, það eru rammarnir sem eru ógeðslega fallegir og fyndnir sem bætir svo miklu við.“ Saga segist í gríni fá að leika svo mikið af bældum og óheillandi konum að hún þakki guði fyrir að hún sé gift. „Því það myndi enginn vilja giftast mér eftir að þessi sería kemur út, allavega ekki hégómafullir menn. Þeir myndu hafna mér,“ segir hún hlæjandi. Hún segir ekki til þá hárkollu sem Ragna Fossberg eigi sem ekki hafi verið notuð í þáttunum. Serían sé gríðarlega fjölbreytt en í lok hvers þáttar er einn stærri vandaðri skets, í anda tónlistarmyndbandanna sem alltaf voru í lok sketsaþátta Steinda. „En í stað þess að enda á lagi þá endum við á svona aðeins meira cinematic skets með mun meiri vigt en hinir sketsarnir. Þetta verður algjör veisla fyrir augun.“
Bíó og sjónvarp Draumahöllin Mest lesið Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Lífið Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Lífið samstarf Fleiri fréttir Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira