Lífið

Skauta­svellið opnað í tíunda sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Skautasvellið hefur verið sett upp á Ingólfstorgi í tíu ár.
Skautasvellið hefur verið sett upp á Ingólfstorgi í tíu ár. Vísir/Vilhelm

Skautasvell Nova og Orkusölunnar á Ingólfstorgi var formlega opnað í gærkvöldi. Flytja þarf inn sérfræðinga að utan til að setja skautasvellið upp.

Rætt var við Heiðu Halldórsdóttur, frá Orkusölunni, og Sigurbjörn Ara Sigurbjörnsson, frá Nova, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þá sagði Sigurbjörn það ekkert grín að setja upp svona skautasvell í miðborginni.

Til þyrfti marga kílómetra af jólaseríum og fluttir hefðu verið inn sérstakir „frost-skauta-sérfræðingar“ til að setja svellið upp.

Þau sögðu um tuttugu þúsund manns kíkja á svellið á ári hverju en þetta í tíunda sinn sem svellið er sett upp.

Svellið verður opið frá tíu á daginn til tólf á kvöldin allan desember. Listamenn munu koma þar fram og þar verður mikið „húllumhæ“ fyrir jólin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.