Formúla 1

Cadillac á leiðinni í For­múlu 1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Formúla 1 vill efla sinn hlut á bandaríska markaðnum og þá er vissulega gott að tefla fram Cadillac liði.
Formúla 1 vill efla sinn hlut á bandaríska markaðnum og þá er vissulega gott að tefla fram Cadillac liði. Getty/Antoine Antoniol

Liðunum mun fjölga í Formúlu 1 frá og með 2026 tímabilinu en þetta var opinberað í gær.

Formúla 1 gaf það þá formlega að samkomulag hafi náðst við General Motors en bílaframleiðandinn ætlar að tefla fram Cadillac liði eftir tvö ár.

Það var vissulega mjög mikilvægt fyrir útbreiðslu íþróttarinnar í Bandaríkjunum að fá öflugan bandarískan bílaframleiðanda inn í keppnina.

„Formúla 1 stefnir á meiri vöxt í Bandaríkjunum og við höfum alltaf trúað á það sé rétt að bjóða öflugu bandarísku fyrirtæki eins og GM/Cadillac til ganga til liðs við okkur. Aðkoma General Motors mun bæði auka virði og efla áhugann á íþróttinni í Bandaríkjunum,“ sagði Greg Maffei, forstjóri Liberty Media sem er rétthafi formúlunnar.

„Við hrósum stjórnendum General Motors og þeirra samstarfsaðilum fyrir að stíga nauðsynleg skref í áttina að vera hluti af formúlu 1. Við erum því mjög ánægð með að halda áfram með umsóknina fyrir GM/Cadillac liðið um að það keppi á heimsmeistaramótinu 2026,“ bætti Maffei við.

Fulltrúar General Motors voru í Las Vegas um helgina og þar fóru viðræður fram. Bílaframleiðandinn hefur unnið að því í nokkur ár að fá sæti í Formúlu 1. Nú virðist sú vinna vera að skila sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×