Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. nóvember 2024 20:07 Mikheil Kavelashvili t.v. lék einnig með Grasshoppers Zürich á löngum knattspyrnuferli. EPA Stjórnarflokkur Georgíu, Georgíski draumurinn, hefur tilnefnt Mikheil Kavelashvili sem forsetaefni sitt í kosningum sem fara fram þar í landi 14. desember næstkomandi.
Georgíski draumurinn vann umdeildan sigur í þingkosningum 26. október en þeim hefur verið mótmælt af hörku og hefur flokkurinn verið sakaður um kosningasvindl. Stjórnarandstaðan hefur haldið því fram að Rússar hafi haft áhrif á niðurstöðurnar og sniðgengur nú þingið. Kavelashvili tók sæti á georgíska þinginu árið 2016.AP Salome Zourabichvili, fráfarandi forseti landsins, krefst ógildingar kosninganna og var ekki viðstödd setningu þingsins á mánudaginn frekar en þingmenn stjórnarandstöðunnar. Talið er að Kavelashvili komi til með að vinna stórsigur í forsetakosningunum framundan. Mikheil Kavelashvili á sjálfur langan feril í knattspyrnu að baki sér og var meðal annars framherji í liði Manchester City um tíma. Hann lék einnig lengi í efstu deild svissnesks fótbolta. Hann var kjörinn á þing fyrir hönd Georgíska draumsins árið 2016. Hann hefur sakað Vesturlönd um að kynda undir skautun og öfgavæðingu í georgísku samfélagi.
Georgía Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira