Fótbolti

Hafa unnið alla heima­leiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingurinn Aron Elis Þrándarson í leik Víkinga á móti Borac Banja Luka í Sambansdeildinni á dögunum.
Víkingurinn Aron Elis Þrándarson í leik Víkinga á móti Borac Banja Luka í Sambansdeildinni á dögunum. Vísir/Anton Brink

Armenska félagið FC Noah tekur á móti Víkingum í Sambandsdeildinni í kvöld en leikurinn er gríðarlega mikilvægur í baráttunni um sæti í útsláttarkeppninni.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 17.45 og verður sýndur beint á Vodafone Sport. Útsending hefst tíu mínútum fyrr.

Heimaliðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum en Víkingar hafa aftur á móti unnið tvo í röð. Málið er að Noah var á útivelli í báðum leikjum en Víkingar á heimavelli.

Armenska liðið er ekki sama lið á heimavelli og það er á útivelli eins og sást kannski í 8-0 skellinum á móti Chelsea á Stamford Bridge í síðasta leik.

Noah hefur unnið alla sex heimaleiki sína í Evrópukeppni þar af 2-0 sigur á tékkneska félaginu Mladá Boleslav í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar.

Noah hefur aftur á mótið tapað sex af átta útileikjum sínum og aðeins unnið einn leik sem var á móti Shkëndija frá Norður-Makedóníu í fyrstu umferð forkeppninnar í ár.

Á heimavelli hefur liðið unnið alla leiki sína og haldið marki sínu hreinu í fimm þeirra. Markatalan 18-1 er Noah í vil.

Víkingar skrifuðu nýjan kafla í sögu íslensks fótbolta með því að verða fyrsta liðið til að vinna leik í Sambandsdeildinni og voru einnig fyrsta liðið til að vinan tvo leiki í röð.

Víkingar geta aftur skrifað söguna með því að verða fyrsta íslenska liðið til að vinna útileik í sögu Sambandsdeildarinnar.

Breiðablik og Víkingur hafa spilað fjóra útileiki til þessa og tapað þeim öllum með markatölunni 2-16.

Víkingur er með sex stig eftir þrjá leiki og situr nú í fjórtándi sæti deildarkeppninnar. Liðið á síðan heimaleik gegn Djurgarden þann 12. desember og svo lýkur deildinni með útileik gegn Lask 19. desember.

  • Heimaleikir FC Noah í Evrópukeppnum
  • 2021-22
  • 1-0 sigur á KuPS frá Finnlandi
  • 2024-25
  • 2-0 sigur á Shkëndija frá Norður-Makedóníu
  • 7-0 sigur á Sliema Wanderers frá Möltu
  • 3-1 sigur á AEK Aþenu frá Grikklandi
  • 3-0 sigur á Ružomberok frá Slóvakíu
  • 2-0 sigur á Mladá Boleslav frá Tékklandi
  • Samtals:
  • 6 sigrar í 6 leikjum
  • +17 í markatölu (18-1)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×