Innlent

Margir greiða at­kvæði utan kjör­fundar fyrir austan

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum heyrum við í Sýslumanninum fyrir austan en mikil sókn hefur verið í að greiða atkvæði utan kjörfundar í komandi Alþingiskosningum.

Ástæðan er veðrið sem spáð er en gul viðvörun tekur gildi á Austfjörðum í kvöld og verður í gildi í um sólarhring.

Einnig fjöllum við um kappræður formanna flokkanna sem fram fóru á Stöð 2 í gærkvöldi. Við fáum álit almannatengils á frammistöðu pólitíkusanna. 

Að auki segjum við frá Svörtum föstudegi sem haldinn er hátíðlegur í dag þar sem alls kyns tilboðuð rignir yfir fólk.

Í íþróttapakka dagsins er það landsleikur kvenna í handbolta en stelpurnar hefja leik í Austurríki síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×