Van Nistelrooy sár yfir því að hafa verið látinn fara frá United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. desember 2024 07:31 Ruud van Nistelrooy stýrði Manchester United í fjórum leikjum áður en Rúben Amorim tók við liðinu. getty/Robbie Jay Barratt Ruud van Nistelrooy sárnaði að hafa ekki fengið að halda áfram að starfa fyrir Manchester United þegar nýi knattspyrnustjórinn, Rúben Amorim, tók við.
Van Nistelrooy var ráðinn aðstoðarmaður Eriks ten Hag hjá United í sumar. Þegar Ten Hag var rekinn tók Van Nistelrooy tímabundið við Rauðu djöflunum og stýrði þeim í fjórum leikjum. Þrír þeirra unnust og einn endaði með jafntefli. Þrátt fyrir það ákvað Amorim ekki að halda Van Nistelrooy í þjálfarateyminu og Hollendingurinn yfirgaf því United. „Þegar ég tók við sem bráðabirgðastjóri sagði ég að ég væri hérna til að hjálpa United og vera áfram til að hjálpa félaginu og ég meinti það. Svo ég var mjög vonsvikinn og það var sárt að þurfa að fara,“ sagði Van Nistelrooy. „Á endanum sætti ég við það því ég skil líka nýja stjórann. Ég hef verið lengi í fótboltanum og verið stjóri sjálfur. Ég skil þetta. Ég ræddi við Rúben um þetta. Ég er þakklátur fyrir samtalið, maður á mann, stjóri á stjóra. Það hjálpaði mér að halda áfram og ræða um nýja möguleika sem gladdi mig.“ Van Nistelrooy var ekki lengi atvinnulaus því hann var á dögunum ráðinn stjóri Leicester City. Hann stýrir liðinu í fyrsta sinn þegar það tekur á móti West Ham United í kvöld. Leicester er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir þrettán leiki, einu stigi frá fallsæti.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Sjá meira