Allir flokkar innan frávika í könnunum nema Flokkur fólksins Lovísa Arnardóttir skrifar 3. desember 2024 09:18 Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir í kosningasjónvarpi RÚV á kosninganótt. Vísir/Anton Brink Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, segir frávik í skoðanakönnunum í öllum tilvikum, nema hjá Flokki fólksins, hafa verið eitt til tvö prósent. Þá segir hún Sjálfstæðisflokkinn hafa verið vanmetinn í síðustu þremur kosningum. „
Þetta er svolítið merkilegt því þarna erum við að eiga við fólk. Við erum að spyrja fólk hvað það ætlar að kjósa og íslenska kosningarannsóknin hefur margoft leitt það í ljós að um fjórðungur fólks tekur ákvörðun inni í kjörklefanum,“ segir Þóra en rætt var við hana um niðurstöður kosninganna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Samkvæmt síðustu könnun Maskínu var samfylkingin með 21,2 prósent en endaði með 20,8 prósent og Viðreisn með 17,2 prósent en endaði með 15,8 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn var með 17,6 prósent en endaði með 19,4 prósent. Flokkur fólksins mældist með 9,1 prósent en endaði með 13,8. Þá mældist Framsóknarflokkurinn með 8,6 prósent en endaði með 7,8 prósent. Miðflokkurinn mældist með 11,2 prósent en endaði í 12,1 prósent. Í síðustu könnuninni mældust Píratar inni með 5,4 prósent en enduðu í þremur prósentum. Vinstri græn voru með 3,9 prósent en enduðu með aðeins 2,3 prósent. Sósíalistaflokkurinn var með 4,5 prósent en endaði með fjögur prósent. Lýðræðisflokkurinn fékk svo eitt prósent atkvæða og var spáð því sama í síðustu könnun. Hún segir niðurstöður síðustu könnunar Gallup hafa verið nær niðurstöðu kosninganna en síðasta könnun Maskínu sem var birt kvöldið fyrir kosningar. Síðasta könnun Gallup var einnig birt síðasta kvöldið fyrir kosningar. Þar mældist Samfylkingin með 20 prósent, Sjálfstæðisflokkurinn með 18,4 prósent, Viðreisn með 17,6 prósent, Flokkur fólksins með 12,6 prósent, Miðflokkurinn 11,1 prósent og Framsóknarflokkurinn með 6,8 prósent. Sósíalistar mældust með 4,8 prósent, Píratar með 4,1 prósent og Vinstri græn með 3,1 prósent. Lýðræðisflokkurinn mældist með 1,4 prósent. „Við erum svona hálfu til eitt prósent frá öllum flokkum nema Flokki fólksins,“ segir Þóra og þá velti maður fyrir sér hvað hafi gerst. Óvænt hversu margir flokkar á vinstri væng þurrkuðust út Það séu auk þess þrír litlir flokkar sem ekki náði inn á þing eða kjördæmakjörnum þingmanni. „Það kom mér á óvart,“ segir Þóra og að hún hafi skoðað þetta vel í gögnunum þeirra í aðdraganda kosninganna. „Svandís var oft inni, Vinstri grænir voru oft inni með mann inni í Norðaustur. Sanna var oft inni. Svo ég taki einhver dæmi. En svo spyr maður sig líka. Þetta litla fylgi sem Sósíalistar og Vinstri græn fengu, var einhver lítill hluti af því sem fór á kjördag yfir á Flokk fólksins?“ Hún segir það hafa komið á óvart að vinstri flokkarnir hafi margir þurrkast út. Kannanir hafi bent til þess að einn þeirra flokka sem náðu ekki inn, Píratar, Vinstri græn og Sósíalistar, myndu ná inn. „Vinstri græn náðu því aldrei en manni fannst á tímabilið að þau væru að sækja í sig veðrið en svo gáfu þau eftir þarna síðustu dagana, eða á föstudeginum. Við spáðum því að Píratar færu inn og Sósíalistar voru að hoppa inn og út. Þessi flokkar fengu minna en þeim var spáð í könnunum.“ Kannanir ekki spár Þóra segir að mikið fylgi Flokk fólksins hafi komið fram í gögnunum þeirra en þau hafi ekki séð að þau væri eins stór og þau enduðu í Suðurkjördæmi „Þau voru við það að velta Sjálfstæðisflokki úr sessi, en þau voru aldrei stærst hjá okkur fyrir kosningar," segir Þóra og á þá við í Suðurkjördæmi Þóra segir kannanir ekki spár. Metill geri spá með því að taka allar kannanir og niðurstöður þeirra og setur saman í eina spá. Metill taki líka tillit til sögunnar. „Skoðanakannafyrirtækin eru ekki að birta spá, þau eru að segja: Svona er staðan núna,“ segir Þóra. Hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn segir Þóra að í upphafi síðustu viku hafi flokkurinn verið í um 13 prósent og svo hafi þau merkt aukningu alla vikuna á fylginu. Þau birtu niðurstöður könnunar á fimmtudag og föstudag og þau hafi séð að þau væru að sækja gríðarlega á. Á kostnað Viðreisnar líklega. „Við sáum að Framsóknarflokkurinn var alla vikuna aðeins að stíga,“ segir Þóra og að Samfylkingin hafi haldið sjó alla vikuna. Sjálfstæðisflokkurinn vanmetinn í þremur síðustu kosningum Hún segir svo margt skemmtilegt í svona gögnum. Áður fyrr hafi Sjálfstæðisflokkurinn alltaf verið ofmetinn og því sé spurt í íslensku kosningarannsókninni hvort það sé líklegt að fólk ætli að kjósa Sjálfstæðisflokkinn því það hafi verið svo líklegt að það hafi ætlað að gera það. Núna sé búið að breyta um taktík og hjá þeim til dæmis spurt hvaða flokk sé ólíklegt að þau ætli að kjósa. Hún segir Sjálfstæðisflokkinn hafa verið vanmetinn í síðustu þremur kosningum. Viðtalið er hægt að hlusta á í heild sinni hér að ofan.
Skoðanakannanir Bítið Alþingiskosningar 2024 Viðreisn Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Miðflokkurinn Lýðræðisflokkurinn Flokkur fólksins Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Sjá meira