Viðskipti innlent

Mátti ekki taka bjór úr hillum eftir allt saman

Árni Sæberg skrifar
ÁTVR tók bjóra Dista út úr þessum kæli.
ÁTVR tók bjóra Dista út úr þessum kæli. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hefur fellt ákvörðun ÁTVR um að taka tvær tegundir bjórs, sem innflutningsfyrirtækið Dista flytur inn, úr hillum vínbúða úr gildi. 

Niðurstaða þess efnir var kveðin upp klukkan 14. Viðskiptablaðið greinir frá. Dómur Hæstaréttar verður birtur klukkan 15.

Héraðsdómur á sama máli og Hæstiréttur

Dista stefndi ÁTVR og krafðist þess að tvær ákvarðanir ÁTVR yrðu felldar úr gildi. Annars vegar ákvörðun um að Faxe Witbier væri tekinn úr sölu og hins vegar að Faxe IPA væri tekinn úr sölu.

Fyrirtækið taldi ÁTVR ekki heimilt að úthluta hilluplássi í vínbúðum á grundvelli framlegðar frekar en eftirspurnar. Bjórarnir tveir falla báðir í flokkinn annar bjór en ÁTVR hafði ákveðið að fimmtíu bjórar með mesta framlegð í flokknum skyldu fá pláss í hillum vínbúða.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Dista í vil sumarið 2022. Í niðurstöðum héraðsdóms sagði að sú reglugerð sem ÁTVR vísaði til ætti sér ekki næga stoð í lögum enda mætti ekki skerða atvinnufrelsi einstaklinga eða lögaðila með reglugerð, en dómarinn taldi að ákvæði reglugerðarinnar um framlegð skerti atvinnufrelsi Dista.

Landsréttur ósammála

Landsréttur sneri þeim dómi hins vegar við og sagði að samkvæmt ákvæði laga um verslun með áfengi og tóbak skyldi ráðherra setja nánari reglur um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi, sem skyldu miða að því að tryggja vöruúrval, meðal annars með hliðsjón af eftirspurn kaupenda, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í áfengisverslunum.

Að virtri breytingarsögu ákvæðisins hafi ekki verið ráðið að ætlun löggjafans hefði verið að hrófla við þeirri áralöngu tilhögun að miða árangursviðmið um vöruval við framlegð. Þá hafi verið fallist á með ÁTVR að viðmið um framlegð endurspeglaði eftirspurn og væri betur til þess fallið að tryggja vöruúrval í verslunum og sölumöguleika birgja.

Einsýnt hafi verið að mati réttarins að þau sjónarmið sem lágu til grundvallar framlegðarviðmiði teldust málefnaleg og í samræmi við markmið áfengislaga um að ÁTVR skyldi starfa með samfélagslega ábyrgð og lýðheilsu að leiðarljósi.

Því væri niðurstaða Landsréttar að framlegðarviðmiðið ætti sér fullnægjandi lagastoð.


Tengdar fréttir

Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum

Hæstiréttur hefur fallist á beiðni áfengisinnflutningsfyrirtækisins Dista ehf. um áfrýjunarleyfi í máli þess á hendur ÁTVR. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að ÁTVR hafi mátt taka tvær tegundir af bjór úr hillum vegna dræmrar framlegðar af sölu þeirra.

Mátti ekki taka bjór úr hillum

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt ákvörðun ÁTVR um að taka tvær tegundir bjórs, sem innflutningsfyrirtækið Dista flytur inn, úr hillum vínbúða úr gildi. Dómurinn taldi ÁTVR ekki hafa farið að lögum með því að taka mið af framlegð þegar ákveðið var hvaða bjórar fengu hillupláss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×