Innlent

Dynjandisheiði boðin út með verk­lokum haustið 2026

Kristján Már Unnarsson skrifar
Leiðin um Dynjandisdal. Veglínan þar fylgir að mestu núverandi vegi.
Leiðin um Dynjandisdal. Veglínan þar fylgir að mestu núverandi vegi. Vegagerðin

Lokaáfanginn í uppbyggingu Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði verður boðinn út á morgun, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Til stóð að bjóða verkið út mun fyrr og sökuðu talsmenn Vestfirðinga stjórnvöld um svik fyrr á árinu þegar því var slegið á frest.

Greint var frá ákvörðun um útboðið í fréttum Stöðvar 2. Auglýstur verður liðlega sjö kílómetra kafli sem liggur úr Dynjandisvogi og upp á háheiðina. Ennfremur eins kílómetra afleggjari að fossinum Dynjanda.

Mesta breyting veglínu verður við Afréttarvatn.Vegagerðin

Þetta verk varð eitt af fórnarlömbum útboðsstopps allra stærri verka hjá Vegagerðinni, sem meira og minna hefur staðið yfir í fimmtán mánuði. Hvorki Vegagerðin né innviðaráðuneytið hafa útskýrt þetta útboðshlé.

Svona verða gatnamótin að fossinum Dynjanda. Til vinstri sést hvernig vegurinn verður lagður upp úr Búðavík í Dynjandisvogi. Til hægri sést veglína upp Dynjandisdal.Vegagerðin

Úr röðum stjórnarþingmanna á nýliðnu kjörtímabili hefur það þó einkum verið skýrt með því að mæta hafi þurft stórfelldum umframútgjöldum til Hornafjarðarfljóts sem Vegagerðin stofnaði til án fjárheimilda. Í pistli á facebook fyrir tveimur vikum sagði Jón Gunnarsson, fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, þetta afleiðingu þess að Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og fjármálaráðherra, hefði sólundað fé og forgangsraðað verkefnum án heimilda Alþingis.

Í frétt Vísis og Stöðvar 2 síðastliðið sumar kom fram að útgjöld án fjárheimildar vegna Hornafjarðarfljóts stefndu í 6,5 milljarða króna. Til að mæta þeirri framúrkeyrslu hafi fimm öðrum stórverkefnum verið frestað; Fossvogsbrú, breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes, brúasmíði í Gufudalssveit, Dynjandisheiði og Brekknaheiði á Langanesi.

Svona verður veglínan um Búðavík í Dynjandisvogi. Fossinn Dynjandi til hægri.Vegagerðin

Núna er stefnt á að tilboð í þennan þriðja áfanga vegagerðar um Dynjandisheiði verði opnuð þann 28. janúar, að sögn Sólveigar Gísladóttur, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir verklokum 30. september 2026. Verktími er samkvæmt því áætlaður um eitt og hálft ár.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Hér má sjá hvaða veglína var valin um friðland fossins Dynjanda:


Tengdar fréttir

Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“

Vegagerðin skýrði frá því í dag að hún undirbúi núna útboð vegna þriðja áfanga nýbyggingar Vestfjarðarvegar um Dynjandisheiði á um 7,3 kílómetra kafla og einnig á um eins kílómetra kafla á Dynjandisvegi. „Áætlað er að útboðið fari í loftið á allra næstu dögum,“ segir í frétt Vegagerðarinnar.

Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir

Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Vestfjarða og Norðvesturkjördæmis, krefst þess að samgönguyfirvöld skýri það undanbragðalaust fyrir komandi alþingiskosningar hversvegna vegaframkvæmdir í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði stöðvuðust og hvort fjármunir, sem Alþingi hafði ráðstafað í verkin, hafi verið fluttir í Hornafjarðarfljót.

Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg

„Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri.

Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni

Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum.

Bæjarstjórn kaus milliveginn sem vegstæði við Dynjanda

Niðurstaða virðist fengin um hvernig Vestfjarðavegur verður lagður við fossinn Dynjanda en tekist var á um tvær mismunandi veglínur í gegnum friðlandið. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar valdi að fara milliveginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×