Viðskipti innlent

Sekta þau sem ekki greiða rétt far­gjald um fimm­tán þúsund krónur

Lovísa Arnardóttir skrifar
Strætó stefnir að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem geta ekki sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit í byrjun árs 2025.
Strætó stefnir að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem geta ekki sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit í byrjun árs 2025. Vísir/Vilhelm

Í byrjun árs 2025 stefnir Strætó að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem ekki geta sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit. Fargjaldaálagið verður almennt 15 þúsund krónur en 7.500 krónur á ungmenni og aldraða. Á öryrkja verður gjaldið 4.500 krónur. Ekki verður innheimt fargjaldaálag af börnum yngri en 15 ára. Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Strætó. Hægt verður að mótmæla fargjaldinu á sérstakri síðu sem á eftir að setja upp. Þá kemur fram að þessi breyting byggt á lögum nr. 28/2017 og reglugerð nr. 1021/2023.

Almennt fargjald í Strætó kostar 650 krónur. Ókeypis er fyrir börn undir 12 ára en fyrir 12 til 17 ára og aldraða kostar 325 krónur. Fyrir öryrkja kostar 195 krónur.

Í tilkynningu kemur einnig fram að eftirlitsmenn hafi verið um borð í vögnum Strætó í mörg ár og að þetta verði eitt af þeirra verkefnum. Þá segir að ávallt hafi verið heimilt að vísa fólki úr vögnum hafi það ekki greitt rétt fargjald en nú bætist fargjaldaálagið við það. Álagi verður innheimt í heimabanka eða greitt á staðnum eftir því sem við á

Í tilkynningu Strætó segir að álaginu sé til dæmis ætlað að minnka svindl um borð í vögnum og að fólk ferðist miðalaust eða á röngu fargjaldi.

„Fargjaldaálaginu er þannig ætlað að tryggja jafnræði og sanngirni í almenningssamgöngum. Með því að tryggja að allir farþegar greiði rétt fargjald er hægt að viðhalda góðri þjónustu og koma í veg fyrir að aukakostnaður vegna svindls bitni á öðrum farþegum,“ segir að lokum.


Tengdar fréttir

Lykil­at­riði að nota alltaf sama kortið til að greiða far­gjaldið

Nú er hægt að borga með korti, síma, úri eða öðrum snjalllausnum í öllum vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Farþegar greiða aldrei fyrir fleiri en þrjár ferðir sama daginn. Framkvæmdastjóri segir lykilatrið að nota alltaf sama kortið svo það virki.

Hægt að borga með korti í strætó

Frá og með deginum í dag er hægt að borga snertilaust með korti í Strætó í gegnum Klapp greiðslukerfið. Fyrirkomulagið hefur verið í prófun hjá fyrirtækinu og er nú komið í fullna virkni að því er segir í tilkynningu frá Strætó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×