Neytendur

Flug­eldar Lands­bjargar lítið hækkað á milli ára

Lovísa Arnardóttir skrifar
Stemningin verður að öllum líkindum svona um áramótin. Þá mun viðra vel til að sprengja flugelda. 
Stemningin verður að öllum líkindum svona um áramótin. Þá mun viðra vel til að sprengja flugelda.  Vísir/Vilhelm

Flugeldasala Landsbjargar hefst á morgun á 100 sölustöðum um land allt. Verð á flugeldum Landsbjargar hefur lítið hækkað á milli ára. Upplýsingafulltrúi segir kökurnar alltaf vinsælar. 

„Um helmingur sölunnar á sér stað á gamlársdag,“ segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar en hann ræddi flugeldasöluna, fjölda útkalla á árinu, fjáröflun Landsbjargar og stöðuna á björgunarsveitunum um jólin í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Flugeldasalan er og hefur verið okkar mikilvægasta fjáröflun í nær 60 ár,“ segir Jón Þór og að það líti ekki út fyrir að það verði nokkur breyting þar á.

Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, spáði i morgun góðu flugeldaveðri um áramótin. Það verði kalt, mikil stilla og því gæti fylgt nokkuð svifryk.

Hann segir flugeldana hluta af hefð Íslendinga og stemningunni. Jón Þór segir ekki verra ef Íslendingar myndu dreifa kaupunum og koma fyrr en á gamlársdag en spáin sé góð fyrir gamlársdag og því séu þeir ekki stressaðir.

Flugeldunum fylgir líka nokkuð rusl.Vísir/Arnar

Jón Þór segir verðið áþekkt og í fyrra. Það sé örlítil hækkun en hún sé minni en hann hefði búist við miðað við verðbólgu.


Tengdar fréttir

Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin

Sigurður Þ. Ragnarsson sem betur er þekktur sem Siggi stormur segir veðrið um jólin að mestu hafa gengið eftir. „Þetta var bara skítaveður,“ sagði Sigurður í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann segir spár benda til þess að veðrið verði fínt um áramót. Það verði stilla á nær öllu landinu en að henni muni fylgja slæm loftgæði þegar fólk byrjar að sprengja flugelda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×