Innlent

Kviknaði í frysti­húsinu út frá flug­eldum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eldurinn kviknaði í gömlu frystihúsi við bryggjuna um miðnætti i nótt.
Eldurinn kviknaði í gömlu frystihúsi við bryggjuna um miðnætti i nótt. Vísir/Egill

Eldur í gömlu fiskvinnsluhúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd kviknaði út frá flugeldum. Rúnar Eyberg Árnason varðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja segir eldinn hafa virst meiri en hann var þegar slökkvilið kom á vettvang um miðnætti í nótt. Slökkvistarf tók um klukkutíma.

„Eldurinn aðeins farinn að koma upp úr þakinu og leit út fyrir að meira en það reyndist vera. Þetta voru ungir drengir að leika sér með flugelda og það kviknaði í hjá þeim þarna,“ segir Rúnar í samtali við fréttastofu.

„Þetta gekk vel en hefði getað farið verr,“ segi Rúnar. Drengirnir hafi allir komist út úr húsinu og enginn inni þegar slökkvilið kom á vettvang.

Hann segir húsið gamalt og í eigu sveitarfélagsins. Húsið er staðsett við höfnina og er ekki í notkun. Hann segir eldinn hafa komið upp í suðausturenda hússins. Það hafi kviknað í við útvegg og eldurinn náð að læsa sig í loftklæðningu og upp í þak.

„Það var aðeins farið að brenna þar. Við vorum þarna í rétt rúman klukkutíma. Gengum úr skugga um að það væri slökkt í öllum glæðum og að það myndi ekkert vera eftir.“

Slökkvistarf tók um klukkutíma.Vísir/Vilhelm

Hann ítrekar að fólk fari varlega með flugelda og noti almenna skynsemi.

Hann segir talsverðan eril hafa verið hjá sjúkraflutningum í nótt. Þá hafi slökkvilið farið í útkall í morgun vegna bruna í rafmagnsskáp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×