Innlent

Ríkis­ráð fundar ekki á morgun eins og hefð er fyrir

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hjá Höllu Tómasdóttur fyrr í þessum mánuði.
Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hjá Höllu Tómasdóttur fyrr í þessum mánuði. vísir/vilhelm

Ríkisráð mun ekki koma saman á Bessastöðum á morgun til fundar eins og hefð er fyrir á gamlársdag. Það var talið óþarfi að funda svo stuttu eftir að ný ríkisstjórn var mynduð og ríkisráð kom saman síðast 21. desember. Þing hefur ekki komið saman eftir kosningar og því engin mál til að afgreiða að svo stöddu.

Þetta staðfestir Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands, í samtali við Vísi. 

Una segir í samtali við Vísi að ríkisráðsfundur hafi verið á gamlársdag frá því í Kristján Eldjárn tók við embættinu. Þetta sé fimmta undantekningin frá þeirri hefð. 

„Árið 1978 var ríkisráðsfundur haldinn degi fyrr og mun það hafa verið vegna þess að gamlársdag það ár bar upp á sunnudag. Árið 1980, á fyrsta ári Vigdísar Finnbogadóttur á forsetastóli, var fundur boðaður en honum frestað á síðustu stundu vegna spennu og vanda í stjórnarsamstarfi. Árið 1989 var ríkisráðsfundur haldinn laugardaginn 30. desember, aftur væntanlega svo að hann skaraðist ekki á við messutíma á sunnudegi. Árið 2021 var ríkisráðsfundi frestað fram á nýja árið þar sem þrír ráðherrar voru í einangrun um áramótin vegna kórónuveirusmits,“ segir í skriflegu svari frá Unu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×