Sport

Æfur og krefst rann­sóknar eftir „lé­legan brandara“

Sindri Sverrisson skrifar
Hans Niemann og Magnus Carlsen mættust á HM í hraðskák í New York á gamlársdag. Niemann tapaði og var svo æfur yfir því hvernig úrslitaleikurinn endaði.
Hans Niemann og Magnus Carlsen mættust á HM í hraðskák í New York á gamlársdag. Niemann tapaði og var svo æfur yfir því hvernig úrslitaleikurinn endaði. Samsett/Getty

Atburðarás síðustu daga hefur kynt enn undir hatrinu á milli skákmannanna Magnusar Carlsen og Hans Niemann sem segir Carlsen þverbrjóta reglur og vefja Alþjóðaskáksambandinu, FIDE, um fingur sér.

Það hefur lengi verið grunnt á því góða á milli hins norska Carlsen og Bandaríkjamannsins Niemann, eða frá því að Carlsen sakaði Niemann um ítrekað svindl, eftir tap í viðureign þeirra á Sinquefield Cup í september 2022.

Þeir mættust í átta manna úrslitum á HM í hraðskák í New York á gamlársdag, þar sem Carlsen vann sigur og fagnaði ógurlega.

Carlsen mætti svo Rússanum Jan Nepomniatsjtsjí, eða Nepo, í úrslitaleiknum og er Niemann vægast sagt ósáttur við að þeir Carlsen og Nepo hafi á endanum deilt heimsmeistaratitlinum.

Sú hugmynd að deila titlinum kom upphaflega frá Carlsen, þegar staðan var enn jöfn í úrslitaleiknum og þeir Nepo höfðu í þrígang gert jafntefli, og forsvarsmenn FIDE féllust að lokum á það.

„Skákheimurinn er opinberlega orðinn að brandara. ÞETTA HEFUR ALDREI ÁÐUR GERST Í SÖGUNNI. Ég trúi því ekki að opinberu sambandi skákarinnar hafi verið stýrt af einum skákmanni Í ANNAÐ SKIPTI Í VIKUNNI. ÞAÐ GETUR BARA VERIÐ EINN HEIMSMEISTARI!“ skrifaði Niemann á Twitter og vísaði þar einnig til þess að Carlsen fékk, eftir nokkurt fjaðrafok, að keppa í gallabuxum á mótinu.

Niemann skrifaði fleira og deildi meðal annars færslu þar sem Carlsen er sakaður um hagræðingu úrslita. Þar sést á myndbandi þegar Carlsen ræðir við Nepo áður en forsvarsmenn FIDE höfðu samþykkt að þeir myndu deila heimsmeistaratitlinum, og heyrist Carlsen segja: „Ef þeir hafna þessu þá gerum við bara jafntefli þar til þeir gefast upp.“

Þetta segir Niemann kalla á rannsókn siðanefndar FIDE. „Ég trúi ekki að tveir keppendur sem með óvægnum hætti ásökuðu mig og reyndu að eyðileggja ferilinn minn skuli brjóta reglurnar opinberlega. Kaldhæðnin verður ekki verri,“ skrifaði Bandaríkjamaðurinn.

Carlsen sá ástæðu til að svara fyrir sig á Twitter og skrifaði þar:

„Ég hef aldrei á mínum ferli samþykkt jafntefli fyrir fram. Á þessu myndbandi er ég að grínast við Ian í aðstæðum þar sem vantar upp á reglur til að skera úr um sigurvegara. Þetta var augljóslega ekki tilraun til að hafa áhrif á FIDE. Orðin féllu í þeim anda að ég taldi að FIDE myndi samþykkja tillögu okkar. Ef eitthvað þá var þetta lélegur brandari í ljósi þessarar alvarlegu stöðu,“ skrifaði Carlsen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×