Innlent

Harður á­rekstur á Fífuhvammsvegi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Einn sjúkrabíll er á vettvangi. Mynd úr safni.
Einn sjúkrabíll er á vettvangi. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Harkalegur árekstur varð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi á öðrum tímanum eftir hádegi í dag. Fólksbíll er mikið skemmdur eftir áreksturinn.

Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að sjúkrabíll hafi verið sendur á vettvang. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru tveir lögreglubílar á staðnum um tvöleytið.

Samkvæmt Guðmundi Kára Sævarssyni aðalvarðstjóra hjá lögreglunni varð tveggja bíla árekstur. Enginn slasaðist alvarlega.

Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að einn hafi verið fluttur á sjúkrahús. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×