Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. janúar 2025 11:53 Odessa Young í hlutverki sínu í myndinni. Gagnrýnendur eru hrifnir af verstfirska hryllingstryllinum The Damned eftir Þórð Pálsson. Myndin var á dögunum frumsýnd í Bandaríkjunum þar sem hún var tekjuhæsta nýja myndin á opnunarhelginni.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá framleiðendum. Um er að ræða fyrstu kvikmynd Þórðar í fullri lengd en hann skrifaði söguna ásamt handritshöfundinum Jamie Hannigan. Myndin er með 84 prósent á Rotten Tomatoes, sem telst ansi gott. Hún er frumsýnd hér á landi þann 30. janúar næstkomandi. Sögusvið myndarinnar er á Vestfjörðum, í afskekktri verbúð á 19. öld. Þar þarf unga ekkjan Eva, sem leikin er af Odessa Young að taka erfiða ákvörðun þegar erlent seglskip strandar í firðinum, eins og því er lýst í opinberri lýsingu á myndinni. „Á hún og vinnumenn hennar að koma skipbrotsmönnum til bjargar eða vernda eigin líf og öryggi? Þjökuð af samviskubiti og ótta við ómanneskjulega hefnd, neyðist Eva og hennar fólk til að horfast í augu við skelfilegar afleiðingar gjörða sinna.“ Gagnrýnendur hafa sérstaklega hrósað kvikmyndinni fyrir hvernig hún fangar bæði fegurð og grimmd íslenskrar náttúru og er vitnað til gagnrýni á vegum miðla líkt og New York Times, IndiewWire og Variety. Kvikmyndatökumaðurinn Eli Arenson, sem þekktastur er fyrir Dýrið er sagður hafa skapað mögnuð myndræn áhrif þar sem snævi þaktar sléttur og kaldar fjallshlíðar verða fullkominn bakgrunnur fyrir þessa drungalegu sögu. Odessa Young er sögð hafa fengið mikið lof fyrir leik sinn sem Eva, þar sem hún túlkar sektarkennd og siðferðileg átök af mikilli næmni. Joe Cole, sem leikur samstarfsmann hennar Daniel, hefur einnig hlotið hrós fyrir sterka frammistöðu. Rory McCann, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem the Hound í Game of Thrones og Siobhan Finneran eru svo sögð bæta dýpt við söguna með eftirminnilegum hlutverkum. Vonir um alþjóðlega viðurkenningu Að sögn framleiðenda gæti velgengi myndarinnar í Bandaríkjunum opnað nýjar dyr fyrir íslenska kvikmyndagerð á alþjóðavísu. Gagnrýnendur hafa spáð því að risarnir í hryllingsmyndum, eins og A24 og Blumhouse, muni keppa um að vinna með leikstjóranum Þórði Pálssyni að framtíðarverkefnum. The Damned undirstriki enn fremur alþjóðlega möguleika íslenskrar kvikmyndagerðar, sérstaklega í kjölfar velgengni Dýrsins og því sé ljóst að íslenskar þjóðsögur hafi mikið vægi á heimsvísu.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Lífið Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Lífið samstarf Fleiri fréttir Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira