„Stemningin var svakalega life affirming, svo maður sletti,“ segir söngvari sveitarinnar Birkir Fjalar Viðarsson hlæjandi í samtali við Vísi. Hann segir að í gamla daga hafi mælistika á góða tónleika verið hversu sturlaðir áhorfendur hafi orðið og hve „illa“ þeir hafi hagað sér. Magnaðar myndir af tónleikunum má skoða neðst í fréttinni.
„En þarna var einhver svona þægileg þakklætisstemning í loftinu. Við fundum vel fyrir því og það má alveg færa rök fyrir því að þarna hafi verið mættar fjórar kynslóðir af tónleikagestum, fólk á aldur við pabba minn, fólk á mínum aldri með börnunum sínum og svo fólk sem er nýskriðið upp í tvítugt.“
Sveitina skipa Birkir Fjalar Viðarsson, Ingi Þór Pálsson, Erling Páll Karlsson, Þorsteinn Gunnar Friðriksson og Gunnar Ingi Jones. Sveitin spilar alvöru harðkjarnapönk og var stofnuð árið 2001. Það sætti mikilla tíðinda þegar sveitin tilkynnti endurkomu sína í sumar en strákarnir stigu á svið á tónleikahátíðinni Sátan í Stykkishólmi svo athygli vakti. Sveitin spilaði líka í tónleikaþáttaröð X-ins 977 Live in a fishbowl.
Alvöru mannlífsgallerí
Birkir segir strákana einstaklega þakkláta sjálfa, það hafi selst upp á tónleikana. „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu. Þetta var alvöru mannlífsgallerí, alvöru stúdía sem okkur þótti rosalega vænt um, að þetta var þvílík flóra af fólki. Það gladdi okkur svo mikið, því að upp á það að gera þá finnst okkur tónlistin okkar meira en bara tónlist ef hún nær að sameina fólk nema ef ekki væri bara þessu einu kvöldstund.“
Hann segir sveitina staðráðna í því að vera sestir í helgan stein, í hið minnsta á þessari stundu. Hún ætli ekki á fullt að nýju, að dæla út nýrri tónlist. En hvenær verða þá næstu tónleikar?
„Almættið eitt veit hvenær það verður. Við erum fjölskyldumenn á virðulegum aldri. Svo á ég svo bágt með að semja texta, mér finnst allir mínir textar svo asnalegir!“ segir Birki hlæjandi að lokum.












