Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Magnús Jochum Pálsson og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 15. janúar 2025 21:09 Brúin yfir Ferjukotssíki er fallin á innan við tveimur árum frá því hún var byggð. Nýleg brú hrundi í vatnavöxtum á Vesturlandi. Að sögn Vegagerðar átti hún að standa mun lengur en íbúar á svæðinu höfðu gagnrýnt smíðina og segja málið algjört klúður.
Brúin yfir Ferjukotssíki hrundi í jakahlaupi í morgun en hér hafa verið miklir vatnavextir í leysingum undanfarinna daga. Brúin gegnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk og bændur hér á svæðinu en hún er innan við tveggja ára gömul. Vonir stóðu til að brúin myndi endast í að minnsta kosti átta ár í viðbót. „Það hefur safnast saman klakastífla undir hana og rifið hana upp af öðrum stöplinum og svo í kjölfarið virðast staurarnir öðrum megin hafa brotnað og gefið sig,“ segrir Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Vesturlandi. Það hlýtur að vera slæmt fyrir ykkur að missa brúnna. Hvaða áhrif hefur þetta á ykkur hér í nágrenninu? „Þetta tekur náttúrulega landið okkar í sundur þannig við þurfum mikið á þessari brú að halda,“ segir Heiða Dís Fjeldsted, íbúi í Ferjukoti. Heiða Dís telur brúnna algjört klúður. „Við höfum aðra leið til að komast í Borgarnes héðan. Ég er með hross hinum megin og heyið mitt. Auðvitað viljum við hafa brú, það er ekki nema eitt og hálft ár síðan þessi brú kom. Allir hér sögðu að þetta virkaði ekki að byggja hana svona.“ Vegagerðin taldi að brúin myndi endast í ljósi hæðar hennar. Bændur segja byggingu bráðabirgðabrúar vera klúður. „Hún er hærri en gamla brúin svo er bara spurning um staðsetningu eða hæðina sem þarf að fara yfir þegar svigrúm gefst þegar þetta at er búið,“ segir Pálmi Þór Dýrt spaug Var klúður að byggja svona bráðabirgðabrú og verja fjármagni í hana sem tórði svo ekki í tvö ár? „Ég myndi segja það. Ég hef heyrt ýmsar upphæðir en hugsa að þetta hafi kostað yfir 200 milljónir. Að byggja bráðabirgðabrú er svolítið dýrt fyrir þennan pening,“ segir Heiða Dís. „Þetta var hugsað sem bráðabirgðabrú til tíu-fimmtán þar til hægt væri að fara í stærri framkvæmdir hérna. Við þurfum bara að taka stöðuna og meta hana með okkar fólki,“ segir Pálmi Þór. Á hverju strandar það að hægt sé að fara hraðar í umfangsmeiri framkvæmdir og betri brú? „Þetta snýst náttúrulega bara um fjárveitingar eins og allt annað,“ segir Pálmi Þór. Vatn byrjað að flæða inn í hús „Það eru miklir vatnavextir út um allt og mikið búið að ganga á í morgun og í dag. Virðast nú ekki vera miklar skemmdir neins staðar annars staðar. Við vonum að það haldi bara og bindum vonir við að þetta verði ekki meira tjón en þetta, sem er alveg nóg,“ sagði Pálmi. Brúin yfir Ferjukotssíki hrundi í vatnavöxtum í morgun. Vegna vatnavaxta eru heilu túnin komin undir vatn á svæðinu. Er byrjað að koma vatn inn í húsin? „Já, það byrjaði að renna vatn inn í hús fyrir hálftíma síðan. Við erum með dælur sem dæla því vonandi út,“ sagði Heiða Dís í viðtali við fréttastofu í kvöld.
Borgarbyggð Samgönguslys Mest lesið Segir nafnlausa konu fara með rangt mál um bróður hans Innlent Brúin yfir Ferjukotssíki fallin Innlent Fólk skilji ekki eftir ósprungna flugelda: „Sprakk strax beint í andlitið á honum“ Innlent Fluttur úr landi grunaður um að valda gassprengingu sem drap einn Innlent Ferðamönnum bjargað af þaki bíls við Kattarhryggi Innlent Dómurinn valdi vonbrigðum og hafi neikvæðar afleiðingar Innlent Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Innlent Hæstiréttur sker úr um hvort samræði við barn sé nauðgun Innlent Bjóst ekki við greiðslum frá Alþingi Innlent Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Innlent Fleiri fréttir „Ömurlegasta sem fólk getur fengið sem bólfélaga“ Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Stjórnsýslan í kringum sjókvíaeldi sé gölluð Bjóst ekki við greiðslum frá Alþingi Segir nafnlausa konu fara með rangt mál um bróður hans Ákærður fyrir að drepa móður sína Vopnahlé á Gaza, brúin sem klúðraðist og tvöfaldar greiðslur Nýskipaður varaseðlabankastjóri peningastefnu Brýnt að endurskoða atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Brottvísuninni frestað fram yfir aðgerð Auglýsa skipulag fyrir 180 íbúðir á Árstúnshöfða Dómurinn valdi vonbrigðum og hafi neikvæðar afleiðingar Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ógilt Kjörnir fulltrúar þurfi að huga að ímynd sinni Lítil virkni frá hrinunni Handritin öll komin á nýja heimilið Klukkan tifar en kandídatar undir hnausþykkum feldi Segja að ögurstund sé runnin upp í Seyðisfirði Nefndin hefur víðtækar heimildir og getur farið fram á endurtalningu Kennarar mæta aftur í Karphúsið Skipulagði loftslagsverkföll og aðstoðar nú loftslagsráðherra Hæstiréttur sker úr um hvort samræði við barn sé nauðgun Brúin yfir Ferjukotssíki fallin Holtavörðuheiðin opin á ný Þingmannanefnd skipuð um rannsókn á kosningu þingmanna Fólk skilji ekki eftir ósprungna flugelda: „Sprakk strax beint í andlitið á honum“ Fluttur úr landi grunaður um að valda gassprengingu sem drap einn Ferðamönnum bjargað af þaki bíls við Kattarhryggi Rólegt við Bárðarbungu Sjá meira