Aktivistahópurinn Öfgar er hættur Lovísa Arnardóttir skrifar 17. janúar 2025 09:17 Öfgar ásamt Bleika fílnum stóðu meðal annars fyrir mótmælum fyrir utan Laugardalsvöll þegar kynferðisbrotamál innan KSÍ komust í hámæli fyrir landsleik íslands og Rúmena í undankeppni HM árið 2021. Vísir/Vilhelm Aktivistahópurinn Öfgar er hættur. Það tilkynna stjórnendur hópsins á Instagram. Hópurinn samanstendur af ýmsum konum en þær sem hafa komið fram fyrir hann eru til dæmis Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir, Helga Benediktsdóttir, Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir, Ólöf Tara Harðardóttir og Ninna Karla Katrínardóttir.
Í tilkynningunni segja þær að það sé alltaf erfið ákvörðun að kveðja það sem maður hefur lagt líf, sál og heilsu í. „Sagan segir okkur þó að þegar samfélagið þarf á því að halda að þá verður til nýtt feminískt afl. Við erum stoltar af okkar framlagi og við erum þakklátar fyrir allan þann stuðning og traust sem okkur var úthlutað,“ segir í tilkynningunni. Tilkynning hópsins á Instagram.Instagram Sjá einnig: Fullorðið fólk megi stunda samræði við börn en börnin ekki skoða klámblað Þær segja ferðalagið hlaðið tilfinningu, erfiðleikum, gleði, sigrum og stundum sorg. Minna á að hafa gaman „Við viljum minna framtíðina á að gleyma ekki að hafa gaman, muna að fagna öllum þeim sigrum sem þið áorkið og ekki missa sjónar af því að við erum saman í liði hvort sem við vinnum saman í samtökum eða sem einstaklingar,“ minna þær á. Stjórn hópsins árið 2022. Að lokum kemur fram að þeir fjármunir sem félagið átti hafi runnið til Rótarinnar og Kvennaathvarfsins. Ásakanir gegn knattspyrnumönnum Aktivistahópurinn var mjög áberandi í kringum til dæmis ásakanir gegn landsliðsmönnum í knattspyrnu um ofbeldi árið 2021 og þegar fjallað var um ásakanir gegn Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni, sem jafnan er þekktur sem Ingó veðurguð. Sjá einnig: Öfgar segja Ingó hafa sakbent sjálfan sig Þær hafa einnig barist fyrir breytingum á lögum um samræðisaldur, gegn brottvísun mansalsþolenda og gegn nauðgunarmenningu. 9. október síðastliðin héldu þær, í samvinnu við Hagsmunasamtök brotaþola, kertavöku til minningar um konur sem hafa látið lífið vegna afleiðinga kynbundins ofbeldis. Hópurinn hélt einnig úti hlaðvarpi um tíma þar sem þær ræddu við þolendur, sérfræðinga og um hin ýmsu feminísku málefni. Sjá einnig: Öfgar höfnuðu samstarfi við Róbert Wessman Segja þær sannar hetjur Fjölmargir skrifa athugasemd við tilkynninguna eins og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sem var talskona Stígamóta en starfar nú hjá Aton, Helgi Ómarsson ljósmyndari og áhrifavaldur en hann hefur oft beitt sér í þágu þolenda, Guðný Bjarnadóttir formaður Hagsmunasamtaka þolenda og margir fleiri. „Takk fyrir ykkar óeigingjarna og mikilvæga starf… Þið eruð sannar hetjur sem að þúsundir þolenda þakka fyrir að segja upphátt það sem flestir fela í hljóði,“ segir Gísli Rafn Ólafsson fyrrverandi þingmaður Pírata og að samstarfið með þeim hafi verið eitt það merkasta á hans ferli. Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, tekur í sama streng. „Takk fyrir alla ykkar baráttu og sigra. Þið eruð magnaðar.“ Sjá einnig: Hvetja fólk til að yfirgefa brekkuna á miðnætti Fríða Rós Valdimarsdóttir fyrrverandi formaður Kvenréttindafélagsins segir: „Takk fyrir baráttu ykkar. Þið skrifuðuð ykkur all rækilega í sögubækurnar.“
Kynbundið ofbeldi Kynferðisofbeldi Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Heimilisofbeldi Félagasamtök Tengdar fréttir Silja Björk biður Ingó afsökunar Silja Björk Björnsdóttir, nýráðinn hugmyndasmiður hjá Pipar, hefur birt afsökunarbeiðni og stílar hana á Ingólf Þórarinsson tónlistarmann. Hún kannast ekki við að hafa verið að tala um hann með ummælum sem féllu í mikilli reiði, en vill samt biðja hann afsökunar. 12. september 2024 14:54 Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ 10. nóvember 2023 14:08 Gagnrýna valið á Aroni Einari: „Þetta staðfestir að nauðgunarmenning þrífst innan KSÍ og að þolendum er ekki trúað“ Aron Einar Gunnarsson var íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem valinn var í gær, föstudag. Landsliðsfyrirliðinn hefur ekki spilað síðan í júní á síðasta ári þar sem mál hans og Eggert Gunnþórs Jónssonar var enn á borði ríkissaksóknara en kona ásakaði þá um að nauðga sér í Kaupmannahöfn árið 2010. Aðgerðarhópurinn Öfgar hefur tjáð sig um málið og þá hefur mikil umræða átt sér stað á samfélagsmiðlum eftir valið. 17. september 2022 09:30 Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Sjá meira
Silja Björk biður Ingó afsökunar Silja Björk Björnsdóttir, nýráðinn hugmyndasmiður hjá Pipar, hefur birt afsökunarbeiðni og stílar hana á Ingólf Þórarinsson tónlistarmann. Hún kannast ekki við að hafa verið að tala um hann með ummælum sem féllu í mikilli reiði, en vill samt biðja hann afsökunar. 12. september 2024 14:54
Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ 10. nóvember 2023 14:08
Gagnrýna valið á Aroni Einari: „Þetta staðfestir að nauðgunarmenning þrífst innan KSÍ og að þolendum er ekki trúað“ Aron Einar Gunnarsson var íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem valinn var í gær, föstudag. Landsliðsfyrirliðinn hefur ekki spilað síðan í júní á síðasta ári þar sem mál hans og Eggert Gunnþórs Jónssonar var enn á borði ríkissaksóknara en kona ásakaði þá um að nauðga sér í Kaupmannahöfn árið 2010. Aðgerðarhópurinn Öfgar hefur tjáð sig um málið og þá hefur mikil umræða átt sér stað á samfélagsmiðlum eftir valið. 17. september 2022 09:30
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“