Grindavík marði Stjörnuna í lokin Siggeir Ævarsson skrifar 18. janúar 2025 19:05 Daisha Bradford var stigahæst Grindavíkurkvenna í dag Vísir/Diego Grindavík tók á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum VÍS bikarsins í dag í leik sem varð æsispennandi fram á síðustu sekúndur.
Gengi Grindavíkur hefur ekki verið upp á marga fiska í undanförnum leikjum en liðið er búið að tapa níu deildarleikjum í röð. Breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins og nýju leikmennirnir, þær Daisha Bradford og Mariana Duran lögðu sín lóð á vogarskálarnar í kvöld. Heimakonur hófu leikinn af krafti og leiddu 27-19 eftir fyrsta leikhluta en eins og svo oft í undanförnum leikjum náðu þær ekki að fylgja eftir góðri byrjun. Gestirnir söxuðu jafnt og þétt á forskotið og komust yfir um miðjan fjórða leikhluta, staðan orðin 63-68. Þá náðu Grindvíkingar loks að hrista af sér slenið og skoruðu sex stig í röð án svars. Þær Bradford og Hulda Björk Ólafsdóttir skoruðu saman síðustu níu stig Grindavíkur en Hulda hefði klárlega getað orðið skúrkur kvöldsins þegar hún klikkaði á tveimur vítum í stöðunni 72-70 þegar þrjár sekúndur voru á klukkunni. Til allrar hamingju fyrir hana og Grindvíkinga náði Isabella Ósk Sigurðardóttir sóknarfrákastinu, einu af sínum fimm í leiknum, og Grindvíkingar sluppu með skrekkinn og inn í 4-liða úrslit VÍS bikarsins. Áðurnefnd Daisha Bradford var stigahæst Grindvíkinga með 21 stig, tíu fráköst og fjórar stoðsendingar. Mariana Duran og Ólöf Rún Ólafadóttir komu næstar með tíu stig hvor. Hjá Stjörnunni var Diljá Ögn Lárusdóttir stigahæst með 25 stig og Denia Davis- Stewart kom næst með 20 stig og 16 fráköst. Katarzyna Trzeciak, sem skipti á dögunum úr Grindavík yfir í Stjörnuna skilaði núll stigum í hús á 31 mínútu og var Stjarnan í -14 þær mínútur sem hún spilaði.
VÍS-bikarinn Körfubolti Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira