Handbolti

„Ég eigin­lega barði þetta í gegn“

Sindri Sverrisson skrifar
Aron Pálmarsson er mættur til leiks á HM og fagnar hér eftir sigurinn gegn Kúbu ásamt Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.
Aron Pálmarsson er mættur til leiks á HM og fagnar hér eftir sigurinn gegn Kúbu ásamt Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. VÍSIR/VILHELM

„Ég er ógeðslega glaður og ánægður með að byrja og fá að koma inn í þetta núna. Maður sá það kannski ekki alveg fyrir tveimur vikum. Ég er ánægður með hvernig við fórum að þessu í dag,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði, sem er mættur til leiks á HM í handbolta.

Aron hafði glímt við meiðsli í kálfa og sleppti leiknum við Grænhöfðaeyjar, en fékk það í gegn að spila leikinn í kvöld og er klár í slaginn mikla við Slóvena á mánudagskvöld.

„Kálfinn er góður. Það var ákveðið fyrir fram að ég myndi byrja leikinn og spila 10-15 mínútur, fá fílinginn, en ég er orðinn hundrað prósent. Þetta var allt eftir plani,“ sagði Aron við Val Pál Eiríksson í Zagreb. Það kom vissulega til greina að Aron fengi hvíld í kvöld einnig en það vildi hann ekki:

„Ég eiginlega barði þetta í gegn. Þjálfararnir voru búnir að segja að ég kæmi inn í milliriðilinn en svo gekk þetta vonum framar. Mig langaði að fá harpix á puttana, spila í höllinni og ég er himinlifandi með að það hafi gengið upp,“ sagði Aron sem hefði líka alveg viljað vera með í fyrsta leik:

„Þetta var mjög erfitt [að missa af fyrsta leik]. Þessi stórmótafílingur, fyrsti leikur, peppa sig inn í klefa, geðveikt rafmagn, og labba svo bara út í mætingagallanum og mega ekki vera með… Það var pínu óþægilegt og leiðinlegt. En þá sinnir maður bara öðru hlutverki,“ sagði Aron.

Hann skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í kvöld, og átti fjórar frábærar stoðsendingar.

Klippa: Aron eftir sigurinn gegn Kúbu

„Einn tapaður bolti reyndar,“ sagði Aron léttur. „Ég var bara mjög fókuseraður og alveg sama um við hverja við værum að spila. Fókusaði á mig og okkur. Það þurfum við að gera á þessu móti.“

Nú tekur við úrslitaleikur í G-riðli við Slóvena, og má segja að alvaran taki við:

„Ég held það sé óhætt að segja það. Við gerðum þetta mjög fagmannlega, fyrstu tvo leikina. Þægilegir leikir en núna er úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins og við ætlum okkur klárlega sigur þar. Það er slatti sem við getum bætt, litlir hlutir, en mér finnst fílingurinn í liðinu góður og ég er mjög spenntur fyrir geggjuðum leik á móti Slóvenum.“

En er ákveðið hve mikið Aron spilar á móti Slóveníu?

„Ég vona ekki. Ég segist bara vera hundrað prósent en auðvitað þurfum við líka að vera skynsamir. Þetta er langt mót og ekki úrslitaleikur mótsins. Ég set þetta í hendurnar á þjálfurunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×