Handbolti

„Þeir eru með hraða tætara“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Elvar Örn verður vonandi í stuði í kvöld.
Elvar Örn verður vonandi í stuði í kvöld. vísir/vilhelm

„Mér fannst við gera þetta gríðarlega vel. Tókum þetta af krafti og settum fókusinn á okkar. Keyrðum yfir þessu lið og nú hefst alvaran,“ segir Elvar Örn Jónsson sáttur við framgöngu íslenska liðsins í skyldusigrunum tveimur á HM.

Eins og hann segir réttilega hefst alvaran í kvöld er strákarnir okkar spila gegn Slóveníu. Úrslitaleikur í riðlinum og í raun fyrsti leikur í milliriðli fyrir bæði lið.

„Það er gaman að byrja að spila alvöru leiki. Við vitum að þeir eru gríðarlega sterkir og taktískt góðir. Þetta er mjög gott lið. Þeir eru vel spilandi og þekkja hvern annan vel. Keyra mörg kerfi og erfitt að eiga við,“ segir Selfyssingurinn sterki en hann er vanur að þurfa að spila mikið á báðum endum. Það mæðir mikið á honum.

Klippa: Elvar: Loksins alvöru leikir

Elvar og félagar þurfa að vera á tánum í varnarleiknum en hvað telur hann að helst þurfi að varast?

„Þeir eru gríðarlega snöggir. Með sterkar skyttur fyrir utan. Með svo nokkra tætara sem eru hraðir og fara í snöggar klippingur. Þeir eru mjög vel staðsettir í öllum kerfum.“

Leikur Íslands og Slóveníu hefst klukkan 19.30 í kvöld og er í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×