Handbolti

Spjót beinast að Degi sem segir orðróma um rifrildi ranga

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þjarmað að Degi á fjölmiðlasvæðinu í Zagreb í gær.
Þjarmað að Degi á fjölmiðlasvæðinu í Zagreb í gær. Vísir/VPE

Örtröð var á viðtalssvæðinu í íþróttahöllinni í Zagreb í gærkvöld eftir tap Króata fyrir Egyptalandi. Dagur Sigurðsson var vinsælastur þeirra sem gengu þar í gegn en ekki vegna þess að króatísku miðlarnir væru svo sáttir við hann.

Valur Páll Eiríksson skrifar frá Zagreb

Undirritaður náði stuttlega tali af Degi á fjölmiðlasvæðinu áður en hann þurfti að drífa sig á blaðamannafund. Þá hafði hann þegar farið í þrjú önnur viðtöl á hinu svokallaða „mixed zone“ þar sem öllum leikmönnum og þjálfurum er gert að ganga í gegn og gefa kost á viðtali.

Fyrirsagnirnar sem blöstu við í morgun voru ekki sérlega hliðhollar okkar manni eftir 28-24 tap Króata fyrir Egyptum í morgun.

Króatar hófu leikinn ekki nægilega vel og áttu í 60 mínútna eltingaleik. Í miðlinum Jutarnji er talað um svartholskafla króatíska liðsins, en í hvert skipti sem þeir króatísku virtust ætla að jafna svöruðu Egyptar með nokkrum mörkum í röð til að auka forskotið.

Veselin Vujovic var ekkert sérlega skemmt.Skjáskot

Handboltaþjálfarinn Veselin Vujović segir þá við 24 Sata að Dagur hafi aldrei unnið leik sem skiptir máli með króatíska liðinu. Hann þurfi að axla ábyrgð.

Degi til varnar, sem einhverjir króatísku miðlanna taka skýrt fram, þá var hann án tveggja heimsklassa leikmanna sem hrukku úr skaftinu fyrir leik. Fyrirliðinn Domagoj Duvnjak og Luka Cindrić eru á meðal fremri útilínumanna heims. Báðir eru úr leik á HM.

Duvnjak meiddist í síðasta leik og er frá út mótið. Því kom á óvart þegar Cindrić var tekinn úr hópnum en ekki Duvnjak í gærmorgun. Cindrić sagður meiddur en fyrrum línumaðurinn Mirza Džomba greindi hins vegar frá því í sjónvarpsútsendingu í gær að Cindrić hefði verið tekinn úr hópnum vegna erja milli hans og Dags.

Það var þétt setið og mikil stemning í 15 þúsund manna höllinni í Zagreb. Þúsundir Króata fór hins vegar heim fúlir.Vísir/Vilhelm

Džomba gagnrýndi þar Cindrić fyrir egóstæla, hann ætti að setja liðið ofar sjálfum sér.

Dagur var spurður út í téð rifrildi við Cindrić á blaðamannafundi eftir leikinn í gær og sagði engan fót fyrir þeim sögum.

„Ég er ekki læknir en það er erfitt að búast við því að hann snúi aftur. Hann mun reyna, hann mun gera sitt besta, við sjáum hvort það er hægt. Voru átök á milli okkar? Ég hef heyrt um það frá öðrum blaðamönnum, en það er ekkert til í því,“ sagði Dagur á fundinum.

Dagur tók nokkur leikhlé en tókst ekki að finna lausnir með nýju útilínuna.Vísir/Vilhelm

Sóknarleikur Króata var stirður í gær og þarf Dagur nú að finna lausnir með glænýja útilínu fyrir komandi átök í milliriðli.

Króatía mætir annað hvort Grænhöfðaeyjum eða Kúbu í næsta leik á miðvikudaginn kemur. Það veltur á úrslitum leiks þeirra liða síðar í dag hvort fer með Íslandi og Slóveníu í milliriðilinn.

Ísland og Slóvenía mæta Króötum í næstu tveimur leikjum þeirra þar á eftir en í kvöld kemur í ljós hvort þeirra liða fer með fullt hús stiga í milliriðilinn.


Tengdar fréttir

„Það hjálpar ekki neitt“

Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta, var ósáttur við tap sinna manna fyrir sterku liði Egyptalands í Zagreb í kvöld en Króatar fara þá aðeins með tvö stig í milliriðil Íslands. Dagur á erfitt með að spá í leik Íslands og Slóveníu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×