Harmur Egypta gæti orðið Íslendingum til happs Valur Páll Eiríksson skrifar 20. janúar 2025 15:21 Ahmed Hesham, Dodo, verður frá í næstu leikjum Egypta. Ayman Aref/NurPhoto via Getty Images Egyptar urðu fyrir blóðtöku fyrir komandi milliriðil með strákunum okkar. Mikilvægur leikmaður liðsins meiddist í góðum sigri gærkvöldsins.
Egyptar spiluðu hörkuvel gegn Króötum Dags Sigurðssonar í keppnishöllinni í Zagreb í gær og unnu fjögurra marka sigur, 28-24. Með því fóru þeir á topp milliriðls sem liðin munu deila með Íslandi og Slóveníu í vikunni. Kvöldið gekk þó ekki áfallalaust fyrir þá egypsku. Vinstri skyttan Ahmed Hesham, gjarnan kallaður Dodo, fór frábærlega af stað í leik gærkvöldsins en í þann mund sem hann skoraði fjórða mark sitt úr jafnmörgum tilraunum meiddist hann á hné. Dodo var studdur af velli og komið í ljós að hann mun missa af allri milliriðlakeppninni. Egyptar eru þegar án síns besta leikmanns, Yehia Elderaa, sem leikur með Aroni Pálmarssyni og Bjarka Má Elíssyni í Veszprem í Ungverjalandi. Þá er Hassan Kaddah, öflug vinstri skytta Kielce í Póllandi, einnig frá. Egyptar spiluðu þó lungann úr leik gærkvöldsins án þeirra þriggja og sýndu að þeir eru engir aukvisar þrátt fyrir skörðin sem eru hoggin í þeirra lið. Í kvöld kemur í ljós hvort Ísland eða Slóvenía fer að hlið Egyptalands á toppi milliriðilsins með fjögur stig. Ef Ísland vinnur í kvöld er næsti leikur gegn Egyptum á miðvikudaginn kemur.
Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2025 Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Sjá meira