Handbolti

Logi Geirs: „Það er ó­trú­legt að liðið sé komið í þessa stöðu“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Geirsson átti erfitt með að trúa því að íslenska landsliðið væri svo gott sem úr leik á HM í handbolta þrátt fyrir að hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína.
Logi Geirsson átti erfitt með að trúa því að íslenska landsliðið væri svo gott sem úr leik á HM í handbolta þrátt fyrir að hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína. Vísir/Vilhelm

Logi Geirsson var sleginn eins og fleiri Íslendingar eftir stóra tapið á móti Króatíu í kvöld. Hvernig er hægt að klúðra mótinu í einum hálfleik?

„Það er rosalega margt sem fer í gegnum höfuðið á mér,“ sagði Logi í útsendingu Ríkissjónvarpsins í kvöld.

„Ég vil fyrst hrósa Degi fyrir að setja þennan leik vel upp,“ sagði Logi. Hann benti á það að Gunnar Magnússon og Dagur hafi fundið réttu leiðina til að trufla leik íslenska liðsins með þessari framliggjandi 5:1 vörn.

„Óli segir undanúrslit en núna er þetta farið úr okkar höndum en við vorum svona frá því að fara í átta liða úrslitin,“ sagði Logi.

„Núna þurfum við að bíða eftir leik. Við spilum leik á móti Argentínu og við þurfum að treysta á önnur úrslit núna,“ sagði Logi.

„Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu. Þetta er ótrúlegt,“ sagði Logi.

Ólafur Stefánsson er mjög svartsýnn á það að úrslitin verði íslenska liðinu hagstæð í lokaumferðinni.

„Já það er mjög ólíklegt. Slóvenar munu ekki hafa að neinu að keppa og Króatar hafa að öllu að keppa. Ég held að það séu svona níutíu prósent líkur á því að þeir vinni þann leik,“ sagði Ólafur.

„Reynsla er eitthvað sem maður fær stuttu eftir að maður þarf á henni að halda. Við vorum að fá mikið þarna í reynslubankann. Auðvitað viljum við ekki sjá það,“ sagði Ólafur.

„Ég stend við það að við vorum betri en við höfum nokkurn tímann verið í mjög langan tíma í þessu móti. Við verðum bara að byggja á því áfram. Nota þá þetta sjokk og halda bara áfram,“ sagði Ólafur.

Logi var sérstaklega ósáttur með leikstjórn Snorra Steins í leiknum. Það að hann hafi aldrei sett Þorsteinn Leó Gunnarsson inn á völlinn og hversu lítið Haukur Þrastarson fékk að spila.

Sérfræðingarnir voru sammála um það að þessi varnarleikur Króata hentaði ekki þeim Janusi Daða Smárasyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×