Erlent

For­sætis­ráð­herra Serbíu segir af sér í kjöl­far mót­mæla

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Forsætisráðherrann hefur sagt af sér en sjónir manna beinast nú að forsetanum.
Forsætisráðherrann hefur sagt af sér en sjónir manna beinast nú að forsetanum. AP/Darko Vojinovic

Miloš Vučević, forsætisráðherra Serbíu, hefur sagt af sér í kjölfar mótmæla stúdenta og bænda sem stöðvuðu umferð við Autokomanda-gatnamót í Belgrad í gær.

Mótmælin brutust út eftir að fimmtán létust þegar þak lestarstöðvar í Novi Sad hrundi þann 1. nóvember síðastliðinn. Stúdentarnir hafa mótmælt spillingu í landinu en forsetinn Aleksandar Vučić sagðist í gær vilja opna á samtal við þá og gaf til kynna að hann myndi mögulega stokka upp í ríkisstjórninni.

Stúdentarnir hafa mótmælt nær alla daga frá því í nóvember og njóta síaukins stuðnings meðal annarra stétta, til að mynda kennara. Mótmælin hafa náð til yfir 100 borga og bæja og þátttaka almennings aukist.

Þúsundir íbúa Belgrad tóku þannig þátt í aðgerðunum í gær og þá lagði einhver fjöldi bænda leið sína inn í höfuðborgina á traktorum. Vinnuvélarnar voru meðal annars notaðar til að verja mótmælendurna en að minnsta kosti tvívegis óku ökumenn inn í hópinn.

Aðgerðirnar eru sagðar minna á mótmælin í aðdraganda falls stjórnar Slobodan Milošević árið 2000 en þá höfðu öryggisyfirvöld í landinu einnig snúist gegn forsetanum. 

Eftir að metfjöldi, 100 þúsund manns, safnaðist saman í Belgrad 22. desember síðastliðinn hótaði Vučić því að siga lögreglu á þátttakendur. Forsetinn var harðlega gagnrýndur í kjölfarið.

Stjórnvöld hafa að einhverju marki komið til móts við kröfur stúdentanna, meðal annars með því að birta gögn um harmleikinn í Novi Sad. Hann átti sér stað skömmu eftir að lestarstöðin var tekin í gegn af kínverskum framkvæmdaaðila.

Mótmælendur segja að slysið megi rekja til spillingar, þar sem framkvæmdin hafi verið ófagleg.

Samgöngumálaráðherra landsins sagði af sér skömmu eftir atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×