Innlent

Styrkjamál flokkanna og á­sælni Trumps í Græn­land

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um mögulega ofgreidd framlög til stjórnmálaflokkanna sem komin eru í ljós. 

Fyrrverandi framkvæmdastjóri VG segir að málið hafi verið blásið upp og Sjálfstæðisflokkurinn segist líta svo á að skilyrði hafi ávallt verið uppfyllt af hálfu flokksins.

Þá fjöllum við um ásælni Donalds Trumps forseta Bandaríkjanna í Grænland og ræðum við þingmann í Vestnorræna ráðinu sem segir að taka þurfi hótanir hans alvarlega. 

Einnig fjöllum við um Læknavaktina þanga sem hundruð sækja þjónustu á degi hverjum. Framkvæmdastjórinn segir læknaskort plaga starfsemina. 

Í íþróttunum íslandsmet í 1500 metra hlaupi sem Baldin Þór Magnússon sló í gærkvöldi, en þetta er annað íslandsmetið sem hann slær á rúmri viku.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 28. janúar 2025



Fleiri fréttir

Sjá meira


×