Viðskipti innlent

Birgir hættir hjá Skaga

Atli Ísleifsson skrifar
Birgir Arnarson hefur verið framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Skaga.
Birgir Arnarson hefur verið framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Skaga. Skagi

Birgir Arnarson, framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Skaga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Þar segir að hann hyggist hefja störf sem meðeigandi (e. partner) á ráðgjafasviði KPMG á Íslandi og Norðurlöndunum. 

Birgir mun starfa hjá Skaga út apríl næstkomandi og verður í framhaldinu félaginu innan handar í nýju hlutverki.

Áður hefur Birgir meðal annars gegnt stöðu framkvæmdastjóra áhættustýringar (e. Chief Risk Officer) í PayPal Europe og yfirmanns lausafjárgreiningar í PayPal samstæðunni. Birgir starfaði einnig sem yfirmaður markaðsáhættugreiningar (e. Head of Market Risk Analytics) á fjárfestingasviði alþjóðlega tryggingafélagsins Zurich.

Birgir er með doktorspróf í kennilegri og hagnýtri aflfræði frá Cornell háskólanum í Bandaríkjunum. Hann er jafnframt með próf í verðbréfaviðskiptum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×