Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Árni Sæberg og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 31. janúar 2025 16:09 Finnur Oddsson er forstjóri Haga. Vísir/Vilhelm Forstjóri Haga segir stöðvun framkvæmda við Álfabakka 2 að hluta hafa áhrif á áform félagsins um flutning hluta starfsemi þess í húsnæðið. Hagar geri ráð fyrir því að eigendur hússins vinni að úrlausn málsins og lausn finnist sem allir geti fellt sig við.
Í morgun var greint frá því að byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hefði stöðvar framkvæmdir við húsið umdeilda að Álfabakka 2 að hluta. Nánar tiltekið hafa framkvæmdir við fyrirhugaða kjötvinnslu á jarðhæð hússins verið stöðvaðar vegna skorts á mati á umhverfisáhrifum. Ætluðu að taka húsið á leigu fyrir kjötvinnslu og aðra starfsemi Hagar hafa áform um að taka húsnæðið á leigu undir starfsemi kjötvinnslu og aðra tengda starfsemi. Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Haga segir í samtali við fréttastofu að fyrirtækið hafi verið upplýst af eigendum Álfabakka 2 ehf., sem er eigandi hússins, í dag að framkvæmdir hafi verið stöðvaðar í húsnæðinu. „Eðli máli málsins samkvæmt þá breytir þetta áætlunum okkar um flutning á starfsemi okkar í húsnæðið. En það á eftir að koma betur í ljós með hvaða hætti. Við gerum ráð fyrir að eigendur Álfabakka 2 ehf. vinni að úrlausn málsins í samvinnu við skipulagsyfirvöld og niðurstaða náist sem allir geti fellt sig við,“ segir Finnur. Borgarstjóri tók við á þriðja þúsund undirskriftum Húsið að Álfabakka 2 hefur verið verulega umdeilt, bæði á meðan það var á frumbyggingarstigi og eftir að veggir þess voru reistir. Þá blasti flennistór grænn veggur við íbúum í nærliggjandi íbúðarhúsi að Árskógum 7. Íbúar í húsinu, sem er í eigu Búseta, afhentu borgarstjóra undirskriftalista í íbúð formanns húsfélagsins á mánudag. Þeir sem rita undir vilja að framkvæmdir við húsið verði stöðvaðar að fullu og undirskriftir eru vel á þriðja þúsund.
Vöruskemma við Álfabakka Hagar Stjórnsýsla Reykjavík Byggingariðnaður Skipulag Matvælaframleiðsla Mest lesið Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Birgir hættir hjá Skaga Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Viðskipti innlent 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Birgir hættir hjá Skaga Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Rannveig kjörin heiðursfélagi Icelandair hefur flug til Miami Verðbólga mjakast niður á við Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Láta af óheimilli ríkisaðstoð við Sorpu Markaðurinn væntir vaxtalækkana Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti Kolefnisförgunarstöð metin með hagsmuni íbúa að leiðarljósi Hæstiréttur tekur deilur Vinnslustöðvarinnar og ríkisins fyrir Nýir forstöðumenn hjá Motus Landsbankinn sé „svo sannarlega“ enn banki allra landsmanna Hallur Flosa rekstrarstjóri prentlausna hjá OK Telur furðulegt að „banki allra landsmanna“ veiti ekki íbúðalán í dreifbýli Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni Þrír nýir eigendur bætast í hópinn Sjá meira