Kryddbrauðið sem kom viðræðunum af stað Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. febrúar 2025 19:30 Hver elskar ekki gott kryddbrauð með smjöri og osti og ísköldu mjólkurglasi? Oddvitar borgarstjórnarflokkanna fimm sem eru í meirihlutaviðræðum hafa verið kallaðir kryddpíurnar eftir að þær borðuð kryddbrauð heima hjá Heiðu Björgu Hilmisdóttur, oddvita Samfylkingarinnar, í gær. Hér má sjá uppskrift að kryddbrauðinu umtalaða.
Fréttamaður Stöðvar 2 náði tali af þeim Líf Magneudóttur, oddvita Vinstri grænna og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Sósíalistaflokksins, eftir óformlegan fund oddvitanna heima hjá Heiðu Björgu í gær. „Heiða bakaði yndislegt kryddbrauð og lokkaði okkur til sín. Þannig ég veit ekkert hvað verður næst,“ sagði Líf Magneudóttir við fréttastofu. Þegar fréttamaður Rúv spurði síðan hvort hópurinn væri kominn með formlegt nafn eins og Valkyrjurnar svaraði Líf: „Kryddpíurnar!“ Kryddpíur og kryddbrauð Á næstunni munu því vafalaust spretta upp alls konar skrif og vangaveltur um það hver oddvitanna sé hvaða kryddpía. Það verður ekki gert hér en hins vegar leitaði fréttastofa til Heiðu Bjargar til að forvitnast út í þetta kryddbrauð sem vakti svo mikla lukku. Að sögn Heiðu hentar kryddbrauðið fyrir öll, vegan sem ekki vegna, unga sem aldna. Hún bauð borgarstjórnarhópi Samfylkingarinnar líka upp kryddbrauðið og segir það hafa slegið jafnmikið í gegn þar og hjá oddvitunum. Hér fyrir neðan má sjá uppskriftina að kryddbrauði Heiðu og einfaldar leiðbeningar: Kryddbrauð 3 dl hveiti 3 dl haframjöl 1 ½ dl sykur 1 tsk. kanill ½ tsk. engifer 1 tsk. negull 1.tsk kakó 2 tsk. matarsódi 3 dl haframjólk Setjið þurrefni í skál og hrærið haframjólkina saman við með sleif. Hrærið öllu saman og setjið í eitt stórt eða tvö lítil smurð form. Bakið við 200°C fyrstu fimmtán mínútunar og svo lækka í 175°C og bakið í 25 mín. Nú geta lesendur Vísis bakað kryddbrauð og kannski líka hafið formlegar meirihlutaviðræður.
Uppskriftir Matur Tengdar fréttir „Kryddpíur“ í formlegt samtal Fimm stjórnmálaflokkar hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sendir fyrir hönd oddvita VG, Sósíalista, Pírata, Samfylkingar og Flokks fólksins. Ekkert hefur verið rætt um það enn hver yrði mögulegt borgarstjóraefni. 12. febrúar 2025 14:58 Mest lesið Kryddbrauðið sem kom viðræðunum af stað Matur Öryrki um þrítugt vegna verkja en lyfjalaus í dag Lífið Móðirin ósátt við veru sonarins í Hvíta húsinu Lífið Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Bíó og sjónvarp Draumurinn rættist en honum fylgdi skömm Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti Tónlist Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Menning „Pabbi var reiður yfir þessu alla ævi“ Lífið Forsetahjónin mættu á frumsýningu Sigurvilja Lífið Fleiri fréttir Kryddbrauðið sem kom viðræðunum af stað Andrés, Daníel og Ásbjörn Íslandsmeistarar Maturinn á boðstólnum yfir Super Bowl Ofurfæðis súkkulaðikaka slær í gegn í skammdeginu Vegan próteinbomba að hætti Kolbeins Arnbjörnssonar Kraftmikill grænn safi fyrir öfluga húð Sjá meira
„Kryddpíur“ í formlegt samtal Fimm stjórnmálaflokkar hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um samstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sendir fyrir hönd oddvita VG, Sósíalista, Pírata, Samfylkingar og Flokks fólksins. Ekkert hefur verið rætt um það enn hver yrði mögulegt borgarstjóraefni. 12. febrúar 2025 14:58