Arnar hrósar Sölva í hástert: „Gerði liðið að sínu strax í fyrsta leik“ Aron Guðmundsson skrifar 15. febrúar 2025 09:32 Arnar Gunnlaugsson fylgdist stressaður en stoltur með leik Víkings Reykjavíkur gegn Panathinaikos í Sambandsdeildinni á dögunum Vísir/Samsett mynd Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari og fyrrverandi þjálfari Víkings Reykjavíkur fylgdist stoltur með liðinu ná í einn af stærstu sigrum íslensks félagsliðs í Evrópu í er liðið lagði Panathinaikos af velli, 2-1 í Sambandsdeildinni. Arnar segir arftaka sinn hafa gert liðið að sínu strax í fyrsta leik. „
Ég var eiginlega meira stressaður að horfa á leikinn í sjónvarpinu heldur en frá hliðarlínunni alla jöfnu,“ segir Arnar. „Maður elskar þessa stráka og félagið það mikið að þetta var bara erfitt. Erfitt að fylgja þessu eftir. Bara geggjaður sigur.“ Sigurinn sé með glæstustu sigrum íslensks félagsliðs í Evrópu. Víkingar nú einum leik, jafntefli eða sigri, frá 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar. „Það hafa verið nokkrir stórir sigrar. Þessi er allavegana uppi með þeim. Þetta var bara svo vel upp settur leikur hjá þjálfarateyminu. Maður man ekki eftir því að liðið hafi lent í teljandi vandræðum allan leikinn. Þá líka bara miðað við hvernig undirbúningi beggja liða var háttað fyrir leikinn. Bara hrós á Víkingana. Þetta er flott fyrir íslenska boltann. Klárlega einn af stóru Evrópusigrunum í sögu Íslands.“ Víkingar á hálfgerðu undirbúningstímabili með lykilmenn frá vegna meiðsla en Panathinaikos, þó einnig með menn frá, en á miðju tímabili heima fyrir. „Þetta var alltaf að fara verða mikil áskorun. Ég fékk magasár yfir þessu í byrjun janúar, hvernig þessu yrði háttað. Það er bara svo mikil jákvæðni í gangi þarna í Víkinni, Sölvi kemur inn ferskur og með nýjan blæ. Nær að virkja strákana vel og nýir aðstoðarmenn kynntir til leiks. Þetta gengur eins og vel smurð vél. En nú sé ekki tímapunktur til að fara fram úr sér. Aðeins sé hálfleikur í einvíginu og framu erfitt verkefni í Grikklandi. „Ef ég má tala til strákana þá verða þeir að halda fókus. Þetta gefur byr undir báða vængi en Grikkirnir eru særð ljón og verða dýrvitlausir á sínum eigin heimavelli. Stuðningsmenn þeirra líka. En ég held að Víkingarnir hafi fengið það sem þeir vildu út úr þessum leik. Að vera í góðum séns, virkilega góðum séns þegar að seinni leikurinn hefst því það verður líka brekka fyrir Grikkina að vera undir þessari pressu frá sínum eigin stuðningsmönnum. Þeir verða pirraðir ef þeir ná ekki að skora á fyrsta stundarfjórðungnum. Víkingarnir verða að láta þennan meðbyr njóta sín í leiknum úti.“ Eins marks forysta sem hefði verið tveggja marka ef óskiljanleg ákvörðun dómara leiksins, að dæma vítaspyrnu undir lok leiks, hefði ekki skotið upp kollinum og gefið Grikkjunum sterkari líflínu. „Ég er nú búinn að dásama VAR í Evrópukeppninni hjá Víkingum hingað til. Mér fannst þetta skrítið víti í gær. Núna er ég ekki að væla, því ég er ekki þjálfari Víkings lengur heldur segi þetta sem stuðningsmaður. Mér fannst þetta skrítið. Í fyrsta lagi var dæmt á hendi en svo finnur dómarinn einhverja afsökun og segist hafa séð brot en ef hann hefði sleppt því að flauta þá hefði þetta aldrei sést. Í einhverri hægri endursýningu í tíunda skipti má mögulega dæma eitthvað en fyrir mér var þetta aldrei víti.“ Arnar líklegast síðasti maðurinn sem rekur upp stór augu í kjölfar þessarar góðu frammistöðu Víkinga. „Þetta er eins og að ala upp barn, svo sendirðu barnið út í lífið og það heldur áfram að gera góða hluti. Maður var eins og stolt foreldri að horfa á þeirra framgöngu en ég vissi allan tímann að liðið væri í topphöndum. Það er búið að vinna geggjað starf, góð stjórn þarna á bak við og Kári með svipuna á lofti. Sölvi er orðinn góður þjálfari og verður toppþjálfari. Hann hefur allt til brunns að bera til að verða toppþjálfari og sýndi kænsku sína gær því að liðið var ekkert að spila eftir svipuðum áherslum og ég var með. Það var töluvert um nýjunga. Hann var að færa menn til og gerði liðið að sínu strax í fyrsta leik.“
Víkingur Reykjavík Sambandsdeild Evrópu Tengdar fréttir „Þetta er allt svona hálfóraunverulegt núna“ Davíð Örn Atlason skoraði fyrra mark Víkinga í kvöld í frábærum 2-1 sigri á gríska félaginu Panathinaikos í Sambandsdeild Evrópu. Leikurinn fór fram í Helsinki í Finnlandi en var heimaaleikur Víkinga. 13. febrúar 2025 20:39 „Við þurfum heldur betur að rífa okkur í gang“ Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos í 2-1 tapi gegn Víkingi í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspili Sambansdeildarinnar. Sverrir segir liðið þurfa að gera betur á öllum sviðum leiksins ef það ætlar ekki að detta úr leik í næstu viku. 13. febrúar 2025 20:59 Uppgjörið: Víkingur - Panathinaikos 2-1 | Ótrúlegar senur á köldu Evrópukvöldi í Helsinki Víkingur vann gríðarsterkan 2-1 sigur gegn Panathinaikos í fyrri umspilsleik liðanna. Davíð Örn skoraði sitt fyrsta Evrópumark og varamaðurinn Matthías Vilhjálmsson bætti svo við fyrir Víkinga. Gestirnir minnkuðu muninn af vítapunktinum undir blálokin. Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Panathinaikos í Grikklandi eftir viku, sigurvegari einvígisins heldur áfram í sextán liða úrslit Sambandsdeildarinnar. 13. febrúar 2025 20:00 Sölvi sáttur en svekktur með vítadóminn: „Hefði verið betra en eins marks forskot“ Sölvi Geir Ottesen stýrði Víkingum til 2-1 sigurs gegn Panathinaikos í sínum fyrsta alvöru leik sem aðalþjálfari liðsins. Hann var ánægður með, nánast, fullkomna byrjun í starfi en ósáttur við vítaspyrnudóminn. Upplegg hans skilaði sér inn á völlinn, leikmenn sýndu ákefð á öllum sviðum leiksins og Sölvi er bjartsýnn á góð úrslit í seinni leiknum. 13. febrúar 2025 20:41 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira
„Þetta er allt svona hálfóraunverulegt núna“ Davíð Örn Atlason skoraði fyrra mark Víkinga í kvöld í frábærum 2-1 sigri á gríska félaginu Panathinaikos í Sambandsdeild Evrópu. Leikurinn fór fram í Helsinki í Finnlandi en var heimaaleikur Víkinga. 13. febrúar 2025 20:39
„Við þurfum heldur betur að rífa okkur í gang“ Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos í 2-1 tapi gegn Víkingi í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspili Sambansdeildarinnar. Sverrir segir liðið þurfa að gera betur á öllum sviðum leiksins ef það ætlar ekki að detta úr leik í næstu viku. 13. febrúar 2025 20:59
Uppgjörið: Víkingur - Panathinaikos 2-1 | Ótrúlegar senur á köldu Evrópukvöldi í Helsinki Víkingur vann gríðarsterkan 2-1 sigur gegn Panathinaikos í fyrri umspilsleik liðanna. Davíð Örn skoraði sitt fyrsta Evrópumark og varamaðurinn Matthías Vilhjálmsson bætti svo við fyrir Víkinga. Gestirnir minnkuðu muninn af vítapunktinum undir blálokin. Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Panathinaikos í Grikklandi eftir viku, sigurvegari einvígisins heldur áfram í sextán liða úrslit Sambandsdeildarinnar. 13. febrúar 2025 20:00
Sölvi sáttur en svekktur með vítadóminn: „Hefði verið betra en eins marks forskot“ Sölvi Geir Ottesen stýrði Víkingum til 2-1 sigurs gegn Panathinaikos í sínum fyrsta alvöru leik sem aðalþjálfari liðsins. Hann var ánægður með, nánast, fullkomna byrjun í starfi en ósáttur við vítaspyrnudóminn. Upplegg hans skilaði sér inn á völlinn, leikmenn sýndu ákefð á öllum sviðum leiksins og Sölvi er bjartsýnn á góð úrslit í seinni leiknum. 13. febrúar 2025 20:41