Formúla 1

F1 2025: Guð gefðu okkur besta tíma­bil sögunnar

Tuttugu og fjórar keppnishelgar, tíu lið, tuttugu framúrskarandi ökumenn en aðeins einn þeirra stendur uppi sem heimsmeistari. Þetta er krúnudjásn akstursíþróttanna, Formúla 1.

Aron Guðmundsson skrifar

Tuttugu og fjórar keppnishelgar, tíu lið, tuttugu framúrskarandi ökumenn en aðeins einn þeirra stendur uppi sem heimsmeistari. Þetta er krúnudjásn akstursíþróttanna, Formúla 1.

Formúla 1 fer aftur af stað um komandi helgi þegar að fyrsta keppnishelgi tímabilsins fer fram í Albert Park í Ástralíu. Mikil spenna ríkir fyrir tímabilinu sem gæti orðið sögulega jafnt.

Að sögn gárunga mega áhorfendur eiga von á afar jöfnu tímabili eins og virðist alltaf vera raunin síðasta tímabilið áður en stokkað er all verulega upp í regluverki mótaraðarinnar. Slíkt verður gert frá og með næsta tímabili þegar að ný kynslóð Formúlu 1 bíla tekur við. 

Það er töluvert um breytingar á liðunum fyrir komandi tímabil, risastórar sögulínur sem rétt er að gera gaum og í þessari skýru hér förum við yfir sviðið og kynnum ykkur fyrir liðunum og ökumönnum þess þannig að þið mætið vel upplýst inn í fyrstu keppnishelgi tímabilsins. 

Auk þess að fara yfir liðin og ökumenn þeirra fáum við Formúlu 1 lýsendurna Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson, umsjónarmenn Pittsins til þess að spá í spilin varðandi eitt og annað er við kemur komandi tímabili. Líkt og síðustu ár mun þeir félagarnir fylgja Formúlu 1 áhugafólki í gegnum tímabilið á Vodafone sport rásinni sem er heimili Formúlu 1 á Íslandi. 

McLaren (1.sæti á síðasta tímabili með 666 stig)

Bíll ríkjandi heimsmeistara bílasmiða hjá McLarenVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla í flokki bíla­smiða: 9

Liðs­stjóri: Andrea Stella

McLaren vann sinn fyrsta heims­meistara­titil í flokki bíla­smiða síðan árið 1998 á síðasta tíma­bili. Liðið vann upp bilið sem þá ríkjandi heims­meistarar Red Bull Ra­cing höfðu byggt upp á fyrri helmingi tíma­bilsins og hafði svo betur í æsi­spennandi baráttu gegn Ferrari sem stóð yfir fram á loka keppnis­helgina í Abu Dhabi. Talið er að McLaren sé lík­legast til af­reka í ár. Bíllinn hefur virkað vel í prófunum og þá hefur liðið yfir að skipa einu öflugasta öku­mann­steymi mótaraðarinnar.

Lando Norris (25 ára Breti)

Það eru margir á því að árið í ár verði hans Lando Norris. Bretinn glaðbeitti hnyklaði vöðvana á síðasta tíma­bili og vann fjórar keppnir og var sá öku­maður sem veitti heims­meistaranum Max Ver­stappen hvað mesta sam­keppni. Reynslunni ríkari á þessu ári ætti engan að undra ef Norris endar á toppnum.

Os­car Piastri (23 ára Ástrali)

Ástralinn hefur komið inn af krafti af krafti í For­múlu 1. Á meðan að Norris hreppti flestar fyrir­sagnir verður ekki fram hjá því litið að Piastri á stóran þátt í heims­meistara­titli McLaren á síðasta ári. Þeir höfðu það sem Red Bull Ra­cing vantaði í baráttunni. Tvo stöðuga öku­menn sem skiluðu inn stigum trekk í trekk. Fókusinn er á Lando Norris fyrir tíma­bilið en mætir Piastri á svæðið öllum að óvörum og verður aðal­maðurinn? Meðbyrinn er allavegana með honum þar sem að í fyrradag var greint frá því að Ástralinn hefði skrifað undir nýjan langtímasamning við McLaren 

Sérfræðingar svara: 

McLaren varð heims­meistari bíla­smiða á síðasta ári og heillaði í prófunum í Bar­ein. Er þetta árið þeirra og Lando Norris?

„McLaren líta mjög vel út eftir prófanir og síðasta tíma­bil. Komandi inn í tíma­bilið er McLaren væntan­lega með besta bílinn en þá líka skiptir öllu máli fyrir liðið að nýta sér það og ég held að ef Lando Norris nær að nýta sér fyrstu fimm til sjö keppnirnar í að ná nokkrum sigrum og for­skoti í heims­meistaramótinu, þá ætti hann að geta spilað á það þegar líður á tíma­bilið. Við sáum það í fyrra að hann var vita von­laus í að sækja á Max Ver­stappen og krumpaðist í raun bara saman í þeim slag. Ver­stappen var með hann alveg í vasanum. Þetta fer því eftir því hvort Norris nái að byggja upp for­skot snemma sem og hvern hann verður að keppa við. Ef hann er að berjast um titilinn við kappa eins og Geor­ge Rus­sell á Mercedes eða Charles Leclerc hjá Ferrari þá held ég að hann geti staðið betur í þeim og missi hausinn ekki jafn mikið og ef það yrði Max Ver­stappen að berjast við hann. Við hrein­lega vitum ekki hverjir verða í þessum slag með honum en það er alveg hægt að giska vel á að Norris sem og Os­car Piastri verða í slagnum þarna á toppnum. Það verður mjög gaman að sjá hvað Piastri gerir á sínu þriðja tíma­bili í For­múlunni því hann er búinn að sanna sig. Piastri getur unnið keppnir, er mjög hraður bæði í tímatökum og keppni en þarf að setja þetta allt saman. Þetta gæti vel verið tíma­bilið sem hann gerir það. Ef hann gerir það getur Lando Norris farið að passa sig.“

Ferrari (2.sæti á síðasta tímabili með 652 stig)

Lewis Hamilton undir stýri á 2025 bíl FerrariVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla í flokki bíla­smiða: 16

Liðs­stjóri: Frédéric Vasseur

Það er engin For­múla 1 án Ferrari. Risinn sem liðið er í heimi akstursíþrótta hefur verið að ranka við sér úr roti og ekki munaði miklu að Ferrari hefði staðið uppi sem heims­meistari bíla­smiða á síðasta tíma­bili. Niður­staðan þá var hins vegar annað sæti. Síðan þá hefur ein risastór breyting verið gerð á skipan liðsins. Car­los Sainz var sendur í burtu og sjöfaldi heims­meistarinn Lewis Hamilton er mættur við hlið Charles Leclerc og óhætt að full­yrða að aldrei hafi skipti eins öku­manns vakið eins mikla at­hygli. Eftir­væntingin er mikil, spennan sömu­leiðis og þar með pressan sem nær langt út fyrir heim For­múlu 1. Verður þetta ár ítalska folans sem hefur ekki bætt við bikar í skáp sinn síðan árið 2008?

Charles Leclerc (27 ára Mónakói)

Stuðnings­fólk Ferrari lítur á Leclerc sem heima­mann. Allt frá því að hann fyllti skarðið sem Kimi Raik­konen skildi eftir sig árið 2019 hefur Leclerc reynt að koma Ferrari aftur á sigur­braut. Hann gerði heiðar­lega atlögu árið 2022, bauð Ver­stappen í birginn en síðan þá hefur heims­meistara­titill virst fjar­lægur draumur. Leclerc sýndi snilli sína á köflum á síðasta tímabili, þetta býr í honum. Sebastian Vet­tel og Car­los Sainz eru engir smá liðs­félagar að hafa og berjast við um aðalsætið hjá Ferrari líkt og Leclerc hefur þurft að gera en nú er Lewis Hamilton mættur, baráttan um að verða gull­drengur Ferrari er hafin.

Lewis Hamilton (40 ára Breti)

Sjöfaldi heims­meistarinn mættur í rautt. Blautasti draumur For­múlu 1 áhuga­mannsins orðinn að veru­leika. Það dreymir alla ökumenn um að keppa undir merkjum Ferrari, Hamilton er þar ekki undan­skilinn. Á slóðum Michael Schumacher reynir hann nú loka­atlögu sína að áttunda heims­meistara­titlinum sem myndi um leið færa honum kóngasæti á toppi Ólymps­fjalli mótaraðarinnar. Öll augu verða á Hamilton í ár.

Sérfræðingar svara: 

Hamilton er mættur til Ferrari. Mun hann geta barist um heims­meistara­titilinn og hvernig koma Ferrari menn stemdir til leiks?

Bragi Þórðarson:

„Við bíðum öll eftir því að sjá Hamilton hjá Ferrari, loksins verður það að veru­leika. Það er komið rúmt ár síðan að til­kynnt var um þetta. Slagurinn milli hans og Leclerc mun án efa vera það helsta sem við munum tala um í fyrstu keppnunum. Veðbankarnir segja að Leclerc eigi að vera á undan og að mínu mati verður Leclerc alveg hundrað pró­sent á undan í tímatökum á laugar­dögum enda einn besti öku­maðurinn á einum hring í For­múlunni. Hamilton er hins vegar með sjö heims­meistara­titla á feril­skránni, fram hjá því verður ekki litið og færri betri í keppnisakstri. Hraðinn þar hjá honum hefur verið mjög góður, hann er sömu­leiðis mjög góður í að hugsa um dekkin. Við munum lík­legast oft sjá Hamilton vinna sig upp goggunarröðina á sunnu­dögum sem verður veisla fyrir okkur sem horfum á. Það er mjög erfitt að segja til um það hvor verður á undan en það verður mikilvægt bæði fyrir Hamilton og Leclerc að byrja tíma­bilið vel og ná þar með að segja liðinu það skýrt snemma á tíma­bilinu að „ég er nú­mer eitt.“ Þetta stefnir í svaka­legan slag Milli McLaren og Ferrari.

Er þetta ár Lewis Hamilton?Vísir/Getty

Kristján Einar bætir við:

„Það hvort að Hamilton geti barist um heimsmeistaratitilinn er sennilega stærsta spurning tímabilsins. Það er tvennt sem að mig langar til að nefna í þessum efnum. Hið fyrra er að á þeim dögum sem Hamilton var að tengja við bíl Mercedes í fyrra var gæinn sturlaður. Spurningin er þá hvort hann hafi ekki verið að tengja við hann á öðrum dögum því aldurinn er farinn að segja til sín og hungrið horfið. Ef að Hamilton kemur til Ferrari og finnur bíl sem hann getur unnið á og hentar honum, fáum við þá annað ár af Hamilton upp á sitt besta eða er það búið? Ef við fáum annað ár af Hamilton upp á sitt besta þá er gæinn sjöfaldur heimsmeistari og búinn að berjast um fleiri. Þá má enginn afskrifa hann, hins vegar finnst mér ólíklegt að öll pússlin falli fyrir hann en langt frá því að vera útilokað.“

Red Bull Ra­cing (3.sæti á síðasta tímabili með 589 stig)

Red Bull Racing teflir fram þessum bíl í árVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 6

Liðs­stjóri: Christian Horn­er

Eftir að hafa haft yfir­burðar besta bílinn tvö ár í röð fékk Red Bull al­vöru sam­keppni á síðasta tíma­bili og fór svo að þeir þurftu að horfa á eftir heims­meistara­titli bíla­smiða. Mexíkóinn Sergio Pérez náði alls ekki að heilla við hlið Ver­stappen og nú hefur honum verið skipt út fyrir mun reynslu­minni öku­mann. Bjartsýnin í garð Red Bull hefur oft verið meiri í upp­hafi tíma­bils, stjörnu­hönnuðurinn Adrian Newey hefur haldið á önnur mið en liðið á þó alltaf aðal ásinn upp í ermi sinni. Max Ver­stappen.

Max Ver­stappen (27 ára Hollendingur)

Heims­meistari síðustu fjögurra ára gerir alltaf til­kall í að verja titilinn á komandi tíma­bili þó svo að önnur lið á borð við McLarenm, Ferrari og jafnvel Mercedes virðist vera með hraðari bíl komandi inn í tíma­bilið. Ver­stappen kemur alltaf með eitt­hvað extra að borðinu. Eftir að hafa fengið hressi­legt baul á sig á frumsýningar­kvöldi For­múlu 1 í O2-höllinni í London á dögunum býst ég við Ver­stappen í víga­hug.

Liam Law­son (23 ára Nýsjálendingur)

Margir bjuggust kannski við því að Red Bull myndi semja við eitt­hvað stórt nafn á borð við Car­los Sainz eða Fernando Alon­so til að fylla upp í skarð Sergio Pérez en svo var heldur betur ekki. Ný­sjá­lendingurinn Liam Law­son er maðurinn sem fær tækifæri lífs síns á komandi tíma­bili. Law­son hefur þurft að vera þolin­móður, fyrst sem vara­skeifa hjá Alpha Tauri, nú RB. Tvö stigasæti á síðasta tíma­bili og hann fær traustið hjá Red Bull í ár og heldur nú inn í sitt fyrsta heila tíma­bil sem aðalöku­maður í For­múlu 1.

Sérfræðingar svara:

Maður skynjar ekki sömu bjartsýnina í garð Red Bull Ra­cing og fyrir síðustu tíma­bil, hvernig metið þið stöðu liðsins?

„Red Bull líta bara alls ekkert vel út. Bíllinn var mjög óstöðugur í prófunum, alltaf að missa grip á mis­munandi hátt þá annað hvort að undir­stýra inn í beygjurnar eða yfir­stýra út úr þeim. Liam Law­son sneri honum nokkrum sinnum og meira að segja Max Ver­stappen líka. Svo voru þeir bara að prófa mis­munandi parta á bílinn alveg þangað til á síðustu mínútum prófana. Þeir voru aug­ljós­lega að leita að svörum og lentu líka í ein­hverjum smávægi­legum bilunum og náðu í raun ekki að keyra heila keppni í prófunum. Það gerðist síðast hjá Red Bull Ra­cing árið 2022 og þá biluðu báðir bílar í fyrstu keppni þar sem að þeir voru ein­fald­lega ekki búnir að prófa bensín­kerfið, hvort það myndi halda í 57 hringi í Bar­ein. Það lofar alls ekki góðu fyrir liðið. Þeir eru hins vegar með eitt stykki Max Ver­stappen og það er í raun alveg sama hvernig bíllinn verður, Ver­stappen verður alltaf í slagnum þarna en það er bara spurning hvort hann verði að berjast um sæti á verð­launa­palli af og til eða hvort hann verði að berjast um sigra og alltaf á palli. Við vitum ekki alveg hvar í goggunarröðinni Red Bull bíllinn verður en miðað við hvað bíllinn virðist vera með sama karakter og í fyrra, það er að segja að það sé mjög erfitt að keyra hann, þá finn ég mikið til með Liam Law­son sem þarf að fara keyra bíl sem verður bara fín­stilltur fyrir Max Ver­stappen sem virðist búa yfir yfir­burðum sem hafa varla sést. Hann er bara eins og ein­hver geim­vera undir stýri.“

Mercedes (4.sæti á síðasta tímabili með 468 stig)

Russell er aðalmaður Mercedes í ár, hér er hann í BareinVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 8

Liðs­stjóri: Toto Wolff

Nýr kafli hefur verið opnaður í sögu Mercedes. Kafli sem verður skrifaður án Lewis Hamilton sem á stóran þátt í vel­gengni liðsins undan­farna ára­tugi. Mercedes veðja á ungan öku­mann með stórt nafn við hlið Geor­ge Rus­sell og það ríkir ákveðin bjartsýni fyrir tíma­bilið eftir prófanirnar í Bar­ein á dögunum. Rus­sell á að leiða liðið inn í nýja tíma sem öku­maður nú­mer eitt, mun hann valda því?

Geor­ge Rus­sell (27 ára Breti)

Öku­manns­hæfi­leikar Rus­sell eru óum­deildir. Bretinn hatar ekki sviðsljósið, hefur reynsluna af því að vinna keppnir í For­múlu 1 og sýndi það vel í fyrra að á hann sé hægt að treysta. Nú fær hann aðal­hlut­verkið hjá Mercedes eftir brott­hvarf Hamilton.

Kimi Antonelli (18 ára Ítali)

Það er átján ára gamall strákur úr Bologna héraði á Ítalíu sem fær það verk­efni að fylla upp í öku­manns­sætið sem sjöfaldi heims­meistarinn Lewis Hamilton skildi eftir sig. Antonelli nafnið er vel þekkt í mótor­sport heiminum og þó svo að Kimi sé svo til nýkominn með bílpróf ber feril­skrá hans til þessa í akstursíþróttum þess merkis að þarna er á ferð öku­maður sem vert er að fylgjast með næstu árin í For­múlu 1.

Sérfræðingar svara:

Bragi Þórðarson er á því að Kimi Antonelli sé sá ökumaður sem muni koma mest á óvart í ár og verða sömuleiðis nýliði ársins.

„Ungstirnið í Mercedes sem fór mjög hratt upp þennan stiga sem við miðum oft við. Var mjög góður í go-kart, fór svo hratt og örugg­lega úr For­múlu 4 í For­múlu 3 og svo For­múlu 2. Mercedes hafa það mikla trú á honum að hann fer beint upp í For­múlu 1 lið Mercedes en ekki þessar króka­leiðir eins og Rus­sell og fleiri sem voru fyrst sendir í lið á borð við Willi­ams. Antonelli er fyrsti nýliðinn til þess að stökkva beint inn í topp­lið síðan að Lewis Hamilton gerði það árið 2007. Kimi virðist vera með þennan ógnar­hraða á einum hring. Ég held að hann verði góður í tímatökum á laugar­dögum en síðan vantar honum náttúru­lega þetta keppnis­innsæi. Að geta hugsað um dekkin yfir tvo klukkutíma og allt þetta. Hann ætti ekkert endi­lega að hanga í þessum körlum á sunnu­dögum en ég hugsa að hann verði ól­seigur á laugar­dögum. Ef að Mercedes bíllinn verður í toppslagnum þá gæti hann hrein­lega unnið keppni í ár. Þetta er langt tíma­bil, Kimi mun nýta það í að læra helling. Hafið auga á þessum dreng.“

Aston Martin (5.sæti á síðasta tímabili með 94 stig)

Öldungurinn Alonso fær leyfi til að keyra þennan bíl Aston Martin í ár.Vísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 0

Liðs­stjóri: Andy Cowell

Það er mál manna að af­rek Aston Martin á komandi tíma­bili verði ekki mikil en spenna ríkir fyrir næstu árum eftir það. Aston Martin hefur fengið til liðs við sig stjörnu­hönnuðinn Adrian Newey frá Red Bull og á Bretinn að hanna bíl sem getur barist um titla þegar keppt verður á nýrri kynslóð For­múlu 1 bíla frá og með næsta tíma­bili. Öku­mann­steymið er það sama og í fyrra. Tvöfaldi heims­meistarinn og öldungurinn Fernando Alon­so leiðir Aston Martin áfram og með honum er pabba­strákurinn Lance Stroll.

Lance Stroll (26 ára Kanadamaður)

Kanada­maðurinn er á leið inn í sitt níunda tíma­bil í For­múlu 1. Hann halaði inn 24 stigum á síðasta tíma­bili en hefur ekki tekist að sann­færa alla um þá hug­mynd að hann sé verðugur For­múlu 1 öku­maður. Lawrence Stroll, faðir hans, er hæstráðandi í For­múlu 1 liði Aston Martin og vilja margir meina að strákurinn sé aðeins að keppa í mótaröðinni því pabbi hans fari með ákvörðunar­valdið í einu liðinu. Það er Lance Stroll að af­sanna það ætli hann sér ekki að vera drag­bítur á liðinu inn í komandi tíma.

Fernando Alon­so (43 ára Spánverji) 

Alon­so verður 44 ára á árinu og virðist hvergi nærri hættur í For­múlu 1. Við vitum öll hvað Alon­so kemur með að borðinu, tveir heims­meistara­titlar og yfir 400 keppnir í For­múlu 1 tala sínu máli, en á síðasta tíma­bili virtist eins og aldurinn væri farinn að segja til sín. Hefur Alon­so allt til brunns að bera til að geta leitt lið Aston Martin inn í nýja tíma?

Sérfræðingar svara: 

Sérfræðingarnir telja að Aston Martin sé það lið sem muni valda mestu vonbrigðum á komandi tímabili.

„Bíllinn leit ekki vel út í prófunum, var þar næst hægastur. Fernando Alon­so talaði um að þeir væru bara á nákvæm­lega sama stað og í Abu Dhabi í fyrra og þá voru þeir með næst hægasta eða þriðja hægasta bílinn. Lítur alls ekki vel út í byrjun tíma­bils fyrir Aston Martin. Þeir eru náttúru­lega að fara í gegnum þetta ferli að gera liðið að topp­liði. Adrian Newey, stjörnu­hönnuður For­múlu 1 er genginn í raðir liðsins, hóf störf þann 3. mars síðastliðinn en hann fer aðal­lega í að hanna bíl liðsins fyrir tíma­bilið 2026 þó hann muni ábyggi­lega hafa ein­hverjar skoðanir á þeim upp­færslum sem Aston Martin fer í yfir komandi tíma­bil. Svo er Aston Martin með einn versta öku­mann For­múlu 1 í Lance Stroll. Það verður lítið um frábæran akstur þar og Fernando Alon­so var nú aðeins farinn að láta á sjá sökum aldurs í fyrra, hann átti margar lé­legar keppnis­helgar og er náttúru­lega ekkert að yngjast. Hann verður 44 ára í ár. Aston Martin mun enda í 7.- 8. Sæti.“

Alpine (6.sæti á síðasta tímabili með 65 stig) 

Bleikur og blár bíll Alpine sem Frikki Dór yrði ánægður meðVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 2

Liðs­stjóri: Oli­ver Oa­kes

Eftir af­leita byrjun á síðasta tíma­bili fór allt að horfa til betri vegar hjá franska liðinu eftir því sem leið á árið. Há­punktur þess var klár­lega á Interla­gos brautinni í Brasilíu þar sem að báðir öku­menn liðsins enduðu á verð­launa­palli. Breytingar hafa verið gerðar á öku­mann­steymi liðsins fyrir komandi tíma­bil en margir eiga von á breytingum á því fljótt.

Pi­er­re Gasly (29 ára Frakki) 

Eftir mikinn innan­búðarslag við Esteban Ocon undan­farin ár kemur Pi­er­re Gasly inn í komandi tíma­bil sem óum­deildur aðalöku­maður Alpine liðsins. Pi­er­re kann þetta allt, þekkir til­finninguna sem fylgir því að vinna keppni sem og að standa á verð­launa­palli og þangað vill hann aftur.

Jack Doohan (22 ára Ástrali)

Maðurinn sem enginn virðist hafa trú á. Það er ekki annað hægt en að vor­kenna Jack Doohan ör­lítið. Hann fékk frum­raun sína í For­múlu 1 keppni í síðustu keppni síðasta tíma­bils og heldur nú inn í sitt fyrsta tíma­bil sem einn af aðalökumönnum Alpine en nú þegar heyrast sögu­sagnir um að vera hans þar gæti verið stutt og að varaöku­maðurinn Franco Colapin­to muni koma inn í hans stað ef Doohan tekst ekki að sanna sig í upp­hafi tíma­bils.

Haas (7.sæti á síðasta tímabili meeð 58 stig)

Ocon kannar takmörk Haas bílsinsVísir/Getty

Fjöldi titla: 1

Liðs­stjóri: Ayao Komatsu

Haas er nú orðið rót­gróið lið í For­múlu 1 og mætir til leiks með glænýtt og nokkuð spennandi öku­mann­steymi inn í komandi tíma­bil. Bandaríska liðið hefur oft valdið usla innan brautar og stolið stigum hér og þar. Spurning hvort það sama verði upp á teningnum í ár.

Esteban Ocon (28 ára Frakki)

Reynslu­boltinn Ocon er mættur til Haas frá Alpine. Ocon og hans fjöl­skylda hafa þurft að fórna miklu í gegnum tíðina fyrir öku­manns­feril hans en það hefur heldur betur skilað sér. Ocon veigrar sér ekki við að leggja hart að sér, stundum gengur hann fram af fólki í þeirri við­leitni sinni en hann fer langt á ástríðunni og gæti fundið taktinn hjá Haas.

Oli­ver Bear­man (19 ára Breti)

Bretinn ungi úr akademíu Ferrari fékk stóra sénsinn á síðasta tíma­bil þar sem að hann, án nokkurs fyrir­vara, þurfti að keppa fyrir Car­los Sainz undir merkjum ítalska risans í Sádi-Arabíu. Það gerði Bear­man með stæl. Hann skilaði Ferrari bílnum í mark í sjöunda sæti og hélt upp­teknum hætti í tveimur keppnum með Haas á síðasta tíma­bili, gerði vel. Þar með fær hann traustið sem einn af tuttugu aðalökumönnum For­múlu 1. Bear­man er öku­maður sem þið ættuð að fylgjast með. Það er auðvelt að halda með stráknum.

RB Honda (8.sæti á síðasta tímabili með 46 stig) 

RB bíllinn þykir með þeim flottustu í ár.Vísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 0

Liðs­stjóri: Laurent Mekies

Yuki Tsunoda (24 ára Japani)

Smái Japaninn með stóra skapið hafði vonast eftir því að fá kallið frá Red Bull Ra­cing fyrir komandi tíma­bil en ekki hringdi síminn. Hann tórir því lengur hjá dóttur­liðinu RB og vonast til að í náinni framtíð geti hann orðið fyrsti japanski öku­maðurinn til að vinna For­múlu 1 keppni.

Isack Hadjar (20 ára Frakki)

Frakkinn er einn af nýliðunum í For­múlu 1 þetta tíma­bilið. Eftir tíma í undir­mótaröðum For­múlu 1 og titil­baráttu í For­múlu 2 á síðasta ári tekur hann skrefið upp á við. Red Bull sér hraða í þessum tvítuga frakka og hver veit, kannski leynist þarna óslípaður demantur?

Willi­ams (9.sæti á síðasta tímabili með 17 stig)

Carlos Sainz mættur undir stýri á 2025 bíl WilliamsVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 9

Liðs­stjóri: James Vow­les

Eftir mögur ár hjá þessu sögu­fræga liði má greina jákvæða áru yfir Willi­ams komandi inn í tíma­bilið. Liðið hefur yfir að skipa einum mest spennandi liðs­stjóra mótaraðarinnar í James Vow­les og að sama skapi er öku­mann­steymi liðsins með þeim öflugri í mótaröðinni. Car­los Sainz er mættur frá Ferrari og prófanirnar í Bar­ein fyrir tíma­bilið hjá Willi­ams veittu þeim byr undir báða vængi.

Car­los Sainz (30 ára Spánverji)

Sainz þurfti að bíta í það súra að vera skipt út hjá Ferrari fyrir Lewis Hamilton. Sú ákvörðun var kunn­gjörð fyrir síðasta tíma­bil og mætti segja að það tíma­bil hafi verið eitt stórt at­vinnu­við­tal fyrir Sainz sem sýndi hvað í honum bjó. Sainz er öku­maður sem gæti vel plummað sig í topp­liðum For­múlu 1. Í Willi­ams fer hann í sögu­frægt lið sem var lengi vel á toppi For­múlunnar. Þar fær hann tækifæri á að hjálpa liðinu að ná fyrri stalli.

Alexander Albon (28 ára Tælendingur)

Albon sem hefur náð að festa sig í sessi í For­múlu 1. Hæfi­leikar hans eru svo sannar­lega til staðar og Albon hefur sýnt það í gegnum tíðina að í rétta bílnum getur hann barist um stigasæti.

Sérfræðingar svara:

Sérfræðingarnir eru á því að Williams sé það lið sem mun koma mest á óvart í ár.

„Ég held að Willi­ams liðið muni ná sínum besta árangri í mörg ár. Þeir voru reglu­lega á verð­launapöllum 2014 og 2015 en síðan þá hefur liðið verið í eyði­merkur­göngu. Eftir fimm til tíu ár verðum við að tala um James Vow­les, lið­stjóra Willams, sem einn besta liðs­stjóra í For­múlu 1. Hann er að gera frábæra hluti fyrir þetta litla lið. Er að byggja það aftur upp á þann stað sem þetta lið á að vera á. Willi­ams er eitt af elstu liðum For­múlu 1 og öku­mann­steymi liðsins er eitt það sterkasta um þessar mundir. Þá leit bíllinn vel út í prófunum. Ég held að Willi­ams verði að berjast um 5.sæti í keppni bíla­smiða.“

Kick Sauber (10.sæti á síðasta tímabili með 4 stig)

Stake SauberVísir/Getty

Fjöldi heims­meistara­titla bíla­smiða: 0

Liðs­stjóri: Mattia Binotto

Síðasta tíma­bil var alls ekki gott fyrir Sauber liðið sem endaði í síðasta sæti og ekki er búist við því að liðið geri neinar rósir í ár. Sauber, sem verður að Audi frá og með tíma­bilinu 2026 teflir fram tveimur nýjum ökumönnum í ár. Mattia Binotto, fyrr­verandi liðs­stjóri Ferrari, er mættur til liðsins og spurning hvort hann nái að dreifa ein­hverjum ítölskum töfrum yfir Sauber.

Nico Hul­ken­berg (37 ára Þjóðverji)

Þýski reynslu­boltinn er met­hafi á meti sem enginn öku­maður vill eiga. Hann á flestar keppnir í For­múlu 1 á bakinu án þess að enda á verð­launa­palli. Það þarf eitt­hvað mikið að gerast ef það á að breytast í ár. Hul­ken­berg tekur stökkið yfir til Sauber frá Haas milli tíma­bila.

Gabriel Bor­to­leto (20 ára Brasilíumaður)

For­múlu 2 meistarinn Gabriel Bor­to­leto fær nú tækifæri til að sanna sig í For­múlu 1. Hann er full­trúi brasilísku þjóðarinnar sem hefur ekki átt aðalöku­mann í For­múlu 1 síðan Feli­pe Massa var þar árið 2017. Saga Brasilíu og For­múlu 1 er löng og inni­halds­rík. Bor­to­leto getur sett sitt mark á þá sögu.






×