Fótbolti

„Ís­lensk knatt­spyrna er að kveðja mjög góðan mann“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ.
Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. Vísir/Ívar Fannar

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, segir söknuð af Svíanum Bo Johansson, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands, sem lést 83 ára að aldri í morgun. Þorvaldur lék undir stjórn Svíans hjá íslenska landsliðinu í þjálfaratíð hans.

„Það er bara söknuður í rauninni. Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann, Bo Johansson. Það var mikil virðing og þakklæti var að honum. Hann kom hér inn í landsliðsverkefnin og þjálfaði og ég var nú þátttakandi í því að vera leikmaður á þeim tíma,“ segir Þorvaldur sem var leikmaður landsliðsins þegar Bo tók við liðinu fyrir 36 árum, árið 1990.

Johansson stýrði Panionos í Grikklandi áður en hann tók við sem landsliðsþjálfari Íslands árið 1990. Hann stýrði landsliðinu í undankeppninni fyrir EM árið 1992 sem liðið hóf á 1-0 heimasigri gegn Albaníu. Við tóku fimm eins marks töp í röð gegn Spánverjum, Tékkum, Frökkum og Albaníu en Johanssonen hætti með íslenska liðið áður en undankeppninni lauk af fjölskylduástæðum.

Síðasti leikur hans sem landsliðsþjálfari Íslands var gegn Dönum í byrjun september árið 1991.

„Þar var mjög góður maður og kurteis. En agaður einstaklingur og féll vel inn í kramið hér í knattspyrnunni hjá okkur. Eina sem ég get sagt í dag er að við sendum bara fjölskyldu hans og vinum bara innilegar samúðarkveðjur. Þetta var virkilega góður maður og með gott framlag til knattspyrnu fyrir okkur hér á Íslandi, ég get ég ekki annað sagt,“ segir Þorvaldur sem lék alls 41 landsleik fyrir Ísland milli 1987 og 1995.

Sigfried Held stýrði landsliðinu áður en Bo Johansson tók við, en Guðni Kjartansson stýrði einum leik í millitíðinni til bráðabirgða.Getty

Bo tók við af Þjóðverjanum Sigfried Held, oft kallaður Siggi, sem hafði þjálfað landsliðið frá 1986 til 1989.

„Guðni Kjartansson tók einn eða tvo leiki, svo kemur Bo aðeins eftir Sigga Held og Ásgeir Elíasson tekur svo við af honum (Bo). Þannig að þarna voru þrír svona, tja, ólíkar persónur. Kannski má segja að Bo hafi verið líkari Ásgeiri frekar en Siggi Held. Þetta var góður hópur og hann féll vel inn í kramið hjá okkur og við bárum mikla virðingu fyrir Bo, það var alveg klárt mál,“ segir Þorvaldur.

Ekki vottur af hroka hjá virðingarfullum Svía

Voru miklar áherslubreytingar sem fylgdu Svíanum?

„Það er ekki hægt að segja annað. Það voru öðruvísi persónuleikar, alveg gjörsamlega. Ég kunni vel við báða aðilana þó ólíkir væru. Siggi var með mjög hardcore 5-3-2 kerfi hann Siggi, og Bo fór svona aðeins að reyna að færa okkur í 4-4-2 ef hægt var. En það gekk nú kannski ekki alveg alltaf nógu vel í því. Þetta voru tveir ólíkir persónuleikar klárlega en báðir mjög viðkunnanlegir.“

Hvernig týpa var Bo Johansson?

„Hann var svona týpískur Skandinavi, ef maður getur sagt það. Hann var mjög sigursæll í að þjálfa í skandinavískum félagsliðum og gekk mjög vel í Danmörku. En hann var þessi týpíski Skandinavi sem kom inn og bar virðingu fyrir öllum. Það var hvorki hroki né dónaskapur sem kom frá honum. Hann talaði við fólk af virðingu og var virkilega þægilegur í umgengni,“ segir Þorvaldur.

Bo Johansson breytti úr 5-3-2 í 4-4-2 leikkerfi sem gekk misvel fyrir landsliðsmenn Íslands að fóta sig í. Hann var meira á Íslandi og fylgdist betur með íslenskum fótbolta en erlendir forverar hans.Nordic Photos / Getty

Erlendir þjálfarar á við Danann Henning Enoksen, Sovétmanninn Jurí Ilitchev og Englendinginn Tony Knapp höfðu stýrt íslenska landsliðinu auk Sigga Held áður en sá sænski tók við.

Sá fyrsti sem hafði áhuga á landi og þjóð

Ákveðin breyting varð með komu hans þar sem hann eyddi meiri tíma hér á landi og fylgdist vel með gangi mála í íslenska boltanum.

„Já, hann fylgdist strax meira með. Siggi var kannski ekkert mikið að fylgjast með deildinni okkar og annað slíkt en Bo gerði það frekar. Hann náttúrulega kemur úr skandinavísku deildarkeppninni og hafði áhuga. Hann hafði meiri áhuga á landi og þjóð en þeir sem á undan komu og öðruvísi karakter í því,“ segir Þorvaldur og bætir við:

„En fyrst og fremst var mjög þægilegt að vinna með honum. Hann var bara mjög þægilegur og bar virðingu fyrir fólki og knattspyrnunni.“

Bo Johansson stýrði Íslandi alls í 15 leikjum og vann sex þeirra, en sigrarnir voru fáir í keppnisleikjum. Eftir dvölina á Íslandi náði hann frábærum árangri í Danmörku með liði Silkeborg sem hann gerði að dönskum meisturum árið 1994.

https://youtu.be/J76Xzbrqzwo?si=kAxzThSRjEf_G5f4

Danska knattspyrnusambandið kallaði árið 1996 og Johansson fór með danska liðið á HM 1998 og EM 2000. Heldur betur gekk á heimsmeistaramótinu þar sem Danir áttu frábæran leik gegn Brasilíu en féll úr leik í 16-liða úrslitum eftir 3-2 tap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×