Lífið samstarf

„Digest Complete hefur gjör­sam­lega bjargað mér“

Artasan
Lilja Ósk - Feedstærð

Margir hverjir glíma við meltingarvandamál sem geta dregið verulega úr vellíðan og haft áhrif á daglegt líf. Uppþemba, þyngsli í maga og vanlíðan eftir máltíðir eru algeng einkenni og geta oft verið tengd of litlu magni af meltingarensímum. Lilja Ósk þekkir þessi óþægindi vel, en eftir að hún prófaði Digest Complete gjörbreyttist líðan hennar.

Ensím eru ómissandi fyrir öll efnafræðileg ferli í líkamanum. Þau stuðla að betri upptöku næringarefna og umbreyta fæðu í orku, sem heldur líkamanum gangandi. Þótt líkaminn framleiði sín eigin meltingarensím, geta ýmsir þættir valdið því að framleiðslan verði ekki nægileg. Skortur á meltingarensímum getur haft víðtæk áhrif, ekki aðeins á meltinguna heldur einnig á önnur kerfi líkamans. Sumir verða svo sem varir við húðvandamál, eymsli í liðum eða jafnvel andlegri vanlíðan án þess að tengja það við meltinguna.

Finnur mikinn mun á líðan með Digest Complete

Lilja Ósk hefur verið að taka Digest Complete og er hæstánægð með virkni þess, en hún trúði því varla í fyrstu hvað það létti mikið á meltingunni og líðan. „Ég heyrði af Digest fyrir um 2-3 árum og hugsaði með mér að það myndi ekki saka að prufa, þar sem uppþemba, þyngsli í maga og vanlíðan eftir máltíðir var daglegur fylgikvilli í kjölfar máltíða. Ég ákvað að fara milliveginn og valdi að prufa Digest Complete. Ég var varla að trúa því í fyrstu hvað þetta var að gera fyrir mig, hlaut eiginlega að vera tilviljun.

Svo var þó ekki því um leið og ég sleppti því að taka töflu með máltíð fann ég aftur fyrir óþægindum. Digest Complete hefur því gjörsamlega bjargað mér og auðveldað mér til muna að takast á við mín magavandamál. Svo ég tali nú ekki um hvað það hefur gefið mér tækifæri til að njóta í matarveislu, yfir hátíðir þegar maturinn er oft þyngri og þegar ég ferðast erlendis og lifi á aðkeyptum mat,“ segir Lilja Ósk.

Digest Complete hefur gjörsamlega bjargað mér og auðveldað mér til muna að takast á við mín magavandamál.

Digest Complete hentar öllum sem vilja bæta meltinguna

Digest Complete er blanda af meltingarensímum sem hjálpar til við að brjóta niður kolvetni, fitu, trefjar og prótein í daglegri fæðu. Þessi ensímblanda hentar vel fyrir þrálát meltingarvandamál en hún stuðlar að betri meltingu og upptöku næringarefna, sem getur dregið úr óþægindum eins og uppþembu og vindgangi.

Digest Complete inniheldur meðal annars ensím eins og amýlasa, lípasa, sellúlasa og próteasa, sem vinna saman að því að brjóta niður mismunandi þætti fæðunnar. Þessi blanda ensíma er hönnuð til að virka á breiðu sýrustigi meltingarvegarins, sem tryggir hraðari meltingu og hámarks stuðning við meltinguna.

Digest meltingarensímin frá Enzymedica eru 100% náttúruleg og hjálpa líkamanum að brjóta niður fæðuna og breyta öllum góðu næringarefnunum í orku. Ensímin eru hönnuð með það að markmiði að hraða á meltingu, auka orku og draga úr vindgang, uppþembu og öðrum ónotum tengd maga. 

Þau eru unnin með einkaleyfisvarinni Thera-blend tækni, sem sameinar mismunandi tegundir ensíma sem virka á mismunandi pH-gildum í líkamanum og ná þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Þetta tryggir skilvirkari meltingu og betri upptöku næringarefna.

Hver er munurinn á Digest meltingarensímunum?

Digest meltingarensímin frá Enzymedica eru einstakur kostur til þess að styðja við meltinguna, draga úr óþægindum og styðja við almenna heilsu. Vörulínan inniheldur fimm mismunandi gerðir ensímblandna sem mæta ólíkum þörfum.

Digest Basic er mildasta formúlan frá Enzymedica og hentar fyrir væg meltingarvandamál. Hún inniheldur ensím sem hjálpa til við að bæta meltingu og næringarnýtingu og er góður daglegur stuðningur fyrir meltinguna.

Digest Complete er tvöfalt öflugri blanda en Digest Basic og hentar fyrir þrálát meltingarvandamál. Hún hentar þeim sem þurfa aukinn meltingarstuðning daglega, sérstaklega fyrir stærri máltíðir.

Digest Gold eru öflugustu fáanlegu meltingarensímin og henta þeim sem glíma við fjölþætt meltingarvandamál og þurfa hámarksstuðning. Auk öflugra meltingarensíma, inniheldur blandan ATPro sem samanstendur af ATP, magnesíum, Q10 og fýtasa.

Digest Spectrum er sérhönnuð ensímblanda fyrir fólk með fæðuóþol eða viðkvæmni fyrir ákveðnum fæðutegundum. Blandan inniheldur ensím sem styðja við meltingu á glúteni, laktósa, kaseini, próteini og fenóli.

Lacto er sérhönnuð fyrir þau sem eiga erfitt með að melta mjólkurafurðir með því að veita sterkan stuðning við meltingu á laktósa og kasein (mjólkurpróteini) og draga þannig úr óþægindum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.