Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2025 12:01 Stuðningsmenn Saint-Étienne eru blóðheitir. getty/Eurasia Sport Images Gera þurfti fjörutíu mínútna hlé á leik Saint-Étienne og Lyon í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að peningi var kastað í aðstoðardómara.
Þegar ein mínúta var til hálfleiks tók Mehdi Rahmouni um höfuð sér eftir að áhorfandi kastaði smápeningi í hann. Sjúkrateymi Lyon hugaði að Rahmouni og meðan það var gert kallaði dómarinn Francois Letexier leikmenn liðanna inn til búningsherbergja. Leikurinn hófst svo aftur um fjörutíu mínútum síðar. Samkvæmt talsmanni frá frönsku úrvalsdeildinni hefði leikurinn verið stöðvaður fyrir fullt og allt ef annað atvik líkt því sem gerðist með Rahmouni hefði átt sér stað. Saint-Étienne vann leikinn á endanum, 2-1. Sigurinn var væntanlega sætur en Saint-Étienne og Lyon eru svarnir fjendur. Stuðningsmönnum Lyon var meinað að ferðast á leikinn vegna atvika í fyrri viðureignum liðanna. Þá hefur Saint-Étienne verið hótað að tveimur endum stúkunnar á Stade Geoffroy-Guichard verði lokað vegna óláta stuðningsmanna liðsins. Í síðasta mánuði var leik Saint-Étienne og Montpellier hætt eftir að stuðningsmenn Saint-Étienne köstuðu blysum inn á völlinn og það kviknaði í hluta stúkunnar á heimavelli liðsins.
Franski boltinn Mest lesið Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Extraleikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfjuhlaupi Sport Fær að dansa á leikunum í búningi „minions“ úr Aulinn ég-myndunum Sport James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast Körfubolti Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Sjá meira