Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. apríl 2025 23:26 Fjöldi fólks hefur tjáð sig um enskunotkun Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í samúðarkveðju. Ekki eru allir á eitt sammála eins og fyrri daginn. Skiptar skoðanir eru um ákvörðun Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, að tala um Frans páfa sem Pope Francis. Meirihluti þeirra sem tjá sig virðist líta á enskunotkunina sem óboðlega. Aðrir telja fjaðrafokið til marks um hneykslunargirni ákveðins hóps.
Halla Tómasdóttir deildi samúðarkveðjum vegna fráfalls Frans páfa um eittleytið í dag. Þar sagði hún heiminn hafa misst „mikilvægan leiðtoga sem hafði kærleika og umhyggju fyrir þeim sem minnst mega sín ávallt í fyrirrúmi og hvatti til ábyrgrar forystu.“ Það sem vakti athygli var að Halla vísaði til páfans sem „Pope Francis“ á ensku í færslunni. Um klukkutíma síðar eftir að íslenskir fjölmiðlar höfðu fjallað um kveðju forsetans var búið að breyta „Pope Francis“ í Frans páfa. Nú hafa ýmsir tjáð sig um enskunotkun forsetans, ýmist með Facebook-færslum eða ummælum við slíkar færslur. „Vont og í raun alveg óboðlegt og óskiljanlegt“ Einn þeirra er Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, sem hefur í gegnum tíðina tjáð sig reglulega um íslenskt mál og gjarnan svarað umvöndunarseggjum og málfarsfasistum. Eiríkur er ekki nógu ánægður með enskunotkun Höllu.Vísir/Arnar „Það var vont og í raun alveg óboðlegt og óskiljanlegt að í opinberri færslu forseta Íslands skyldi vísa til Frans páfa með enskri gerð af nafni hans og embættisheiti,“ skrifar Eiríkur í færslu á Facebook-hópnum Málspjallinu. „Sem betur fer var þessu breytt fljótlega en þetta sýnir að enskan laumar sér víða inn og nauðsynlegt er að vera alltaf á verði gagnvart óþarfri og ástæðulausri enskunotkun,“ skrifar hann jafnframt. „Innilegar condolences til The Vatican“ Annar sem tjáir sig um enskunotkun forsetans er Illugi Jökulsson, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður, sem fjallar gjarnan um málefni líðandi stundar á Fésbókarsíðu sinni. Illugi er mikill Fésbókarmaður. „Sko. Ég er sérstaklega umburðarlyndur maður. En þetta hefði President Tomas nú alveg getað gert betur. Hún hefði til dæmis getað syrgt fráfall „Franciscus Papa“ ef henni er af einhverjum ástæðum illa við að nota hið íslenska „Frans páfa“. Hvorki páfinn né páfastóll hafa neitt sérstakt með enska tungu að gera,“ skrifar hann í Facebook-færslu sem hefur vakið gríðarlega viðbrögð. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa 233 brugðist við færslu Illuga og hafa 126 ummæli verið skrifuð við hana. Fjöldi fólks tekur þar undir orð Illuga. Agli og Margréti finnst enskunotkun forsetans pínleg. „Úff,“ skrifar Egill Helgason, fjölmiðlamaður og menningarpáfi, við færsluna og bætir svo við neðar: „Óbreyttur blaðamaður sem gerði þetta myndi aldeilis fá skamm í hattinn.“ Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur og formaður Rithöfundasambands Íslands, tekur í sama streng og skrifar: „Ó hvað þetta er innilega vont.“ Aðrir hæðist að Höllu, þar á meðal fornfræðingurinn Þorsteinn Vilhjálmsson sem skrifar: „Innilegar condolences til The Vatican.“ Mexico City, Mexíkóborg eða Ciudad Mexico Einn sem skrifar ummæli við færsluna er Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, en hann veitir Höllu gott ráð. Hannes Hólmsteinn lærði góða lexíu hjá Jóni S. Guðmundssyni í lærða skólanum. „Þegar ég var í þriðja bekk í MR (1968–1969), skilaði ég ritgerð og minntist á Mexico City. Jón S. Guðmundsson, íslenskukennari minn, benti réttilega á, að ég ætti annaðhvort að nota íslenska nafnið, Mexíkóborg, eða hið spænska, Ciudad Mexico. Ég lét mér þetta að kenningu verða,“ skrifar hann við færsluna. Hugsanlega lætur Halla „Pope Francis“ sér að kenningu verða. Niðurlægingarpílur úr skúmaskotum Enn svo eru aðrir sem eru ósammála. Steinunn Ólína, leikkona og forsetaframbjóðandi, hæðist frekar að þeim sem skammast í Höllu en í sínum gamla keppinaut um forsetaembættið: „Hér tala þeir sem hafa vit á því hvernig rétt er að ávarpa fyrirfólk. Stórkostleg skemmtilesning!“ Steinunn Ólína laut í lægra haldi fyrir Höllu í forsetakosningunum 2024.vísir/arnar Þá tekur Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrverandi deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, upp hanskann fyrir Höllu. „Jesús, með fullri virðingu - það má alveg fá pínu krull í tærnar - en er þetta svona alvarlegt á stóra skalanum? Ég er ekki í vafa um að flestir viti að frú Höllu gangi gott eitt til í öllu hennar starfi. Má kannski óska þess að umræðunni sé lyft upp á ögn hærra plan eins og sumir gerðu forðum?“ skrifar Hildigunnur við færsluna. Hildigunnur er arkítekt og hefur skrifað pistla í Víðsjá. Í öðrum ummælum segir Hildigunnur að sér finnist skrýtið hvað fólk geri mikið úr málinu. Hana gruni að það sé til marks um „undirliggjandi afstöðu ákveðins hóps, fólks sem hefur að mestu unnið hér sína starfsævi, kemur af fólki sem hefur innrætt þeim málvitund byggða á ákveðnum málfarsfasisma - og ákveðnum innlendum menningarelítisma.“ Hún segir síðan að skoða þurfi viðteknar niðurlægingarpílur á forseta Íslands sem „mest eru skotnar úr einhverju skúmaskoti þess að þykjast betri en hún. Að hún sé ekki af „okkar“ tagi, þ.e. okkar menningarvitanna.“ „Segi mest um þá sem heilaga telja sig“ Önnur sem tekur upp hanskann fyrir Höllu er Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur og kennari. „Halla ræður sínum skrifum, held að hneykslunin segi mest um þá sem heilaga telja sig,“ skrifar hún í ummælum við deilingu á frétt Vísis um kveðjuna. Vigdís telur hneykslan fólks segja meira um það en forsetann. Henni svarar Gústaf Níelsson, sagnfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins: „Auðvitað má hún skrifa hvað sem henni dettur í hug. Lakara er þó þegar samband á milli heila og fingra á lyklaborðinu rofnar, auk þess sem hún er forseti Íslands. Hún lærir sjálfsagt af þessu og um það er ekkert nema gott að segja.“ Hann hafði sjálfur skrifað minna uppbyggileg ummæli við færsluna sem hljóðuðu svo: „Við hverju má búast af konu sem þekkir ekki Gunnar á Hlíðarenda?“
Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Íslensk tunga Samfélagsmiðlar Andlát Frans páfa Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Sjá meira