Viðskipti innlent

Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout

Lovísa Arnardóttir skrifar
Renata og Margrét hjá Nova ásamt Ingu Tinnu og Magnúsi hjá Dineout skáluðu við undirritun samnings.
Renata og Margrét hjá Nova ásamt Ingu Tinnu og Magnúsi hjá Dineout skáluðu við undirritun samnings. Aðsend

Nova hefur eignast 20 prósenta hlut í Dineout ásamt því að taka sæti í stjórn félagsins. Inga Tinna Sigurðardóttir, stofnandi og forstjóri Dineout, og Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, undirrituðu samning um kaupin í dag. 

Samhliða var undirritaður samningur um fjármögnun til þróunar á nýjum lausnum í strategísku samstarfi við Nova.

Í tilkynningu kemur fram að Nova hafi samkvæmt samningi kost á að auka við hlut sinn á næstu árum. Markmið kaupanna er samkvæmt tilkynningunni að styrkja enn frekar FyrirÞig, vildarklúbb Nova appsins. Kaupin eru talin fela í sér tækifæri til að auka vöruframboð til bæði lítilla og meðalstórra fyrirtækja auk þess að vina að vöruþróun.

„Við horfum til vegferðar þar sem við getum nýtt sameiginleg tækifæri fyrir viðskiptavini, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði, til þess að einfalda fólki lífið, spara því peninga, en líka hvetja það til að skemmta sér og njóta lífsins saman. Við viljum jafnframt einfalda fólki það að nýta allan ávinninginn sem fylgir því að vera viðskiptavinur Nova til þess að styrkja viðskiptavinasambandið enn frekar. Ég tel að kaupin og samstarfið muni styrkja þá vegferð,“ segir Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova.

Aukið vöruframboð

Dineout var stofnað árið 2017 með það markmið að þróa borðabókunarkerfi fyrir íslenska veitingastaði. Í dag nýta samkvæmt tilkynningunni yfir 600 fyrirtæki sér lausnir Dineout í daglegum rekstri. Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout, segir í tilkynningu það mikinn feng að fá Nova inn sem fjárfesti.

„Við teljum að lausnirnar okkar falli mjög vel að vöruframboðinu í Nova appinu og munu sömuleiðis nýtast víðar í þjónustu þeirra. Að sama skapi mun sýnileiki viðskiptavina Dineout aukast. Við hlökkum til að auka vöruframboðið enn frekar og kynna nýjar lausnir til leiks í samstarfi við Nova,“ segir Inga Tinna.


Tengdar fréttir

Í samkeppni við Noona með Sinna

Inga Tinna Sigurðardóttir, eigandi Dineout.is, opnaði nýlega nýtt markaðstorg á vefnum sinna.is þar sem hægt er að bóka tíma í hárgreiðslu, á snyrtistofu, heilsulind, nudd og ýmsa þjálfun. Inga Tinna segir þau leggja áherslu á heilsu og vellíðan. Um 60 rekstraraðilar hafa skráð sig á síðuna.

Framlengja samstarf sem hefur komið tugum sprota á laggirnar

Nova og Klak - Icelandic Startups undirrituðu samning um áframhaldandi samstarf um Startup Supernova nýsköpunarhraðalinn til næstu þriggja ára í Grósku á föstudaginn. Hraðallinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2020 og markmið hans er að styðja frumkvöðla við að þróa viðskiptalausnir sem eiga erindi á alþjóðamarkað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×