Lífið

Stjörnulífið: Drottningar á Bessa­stöðum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins skinu skært í vikunni.
Stjörnur landsins skinu skært í vikunni.

Maímánuður er genginn í garð með tilheyrandi gleði og hækkandi sól. Stjörnur landsins skinu skært í vikunni, hvort sem það var í boði á Bessastöðum, á auglýsingaskiltum erlendis eða á hlaupum í utanvegahlaupinu Puffin Run í Vestmannaeyjum. 

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Skinu skært í New York

Tvíburasysturnar Laufey Lín og Júnía Lín Jónsdætur fóru til New York í vikunni til að sjá Laufey birtast á stærðarinnar auglýsingaskilti á Times Square.

Laufey var þó ekki eini Íslendingurinn sem stal senunni í Stóra eplinu. Förðunarfræðingarnir og eigendur Reykjavík Makeup School, Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir, voru einnig í New York, þar sem auglýsing fyrir förðunarmerkið þeirra, Chilli in June, birtist á skjá á Times Square.

Íslendingar virðast heillaðir af New York,en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, tilkynnti í vikunni að hún hyggst flytja til New York í haust til að stunda nám við Columbia-háskólann.

Töfrandi hafmeyjuhellir

Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einars baðaði sig í töfrandi helli í Cancun í Mexíkó.

Asíureisan hélt áfram

Jón Jónsson og fjölskylda héldu ferðalagi sínu Asíu áfram og voru komin til Bangkok.

Magnús Geir Þórðarsson Þjóðleikhússtjóri og fjölskylda voru einnig með í för.

Sól og sæla

Útvarpskonan Kristín Ruth Jónsdóttir slappaði af í sólinni undir bláum himni og pálmatrjám.

Afmælisgleði í Svíþjóð

Áhrifavaldurinn Júlíana Dögg fagnaði 25 ára afmæli sínu í Svíþjóð um helgina.

Puffin Run í Vestmannaeyjum 

Hlaupadrottningin Mari Jaersk lét sig ekki vanta á eyjuna fögru síðastliðinn laugardag og tók þátt í Puffin Run 20 kílómetra utanvegarhlaupi í rjómablíðu.

Nýtt lúkk

Tónlistarkonan Bríet Isis var gestur Vikunnar með Gísla Marteini síðastliðið föstudagskvöld.

Drottningar á Bessastöðum

Áhrifavaldarnir og ofurskvísurnar Hildur Sif Hauksdóttir, Magnea Björg, Ástrós Traustadóttir og fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir voru meðal þeirra sem heimsóttu Frú Höllu Tómasdóttur á Bessastöðum í vikunni. Tilefnið var verkefni Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefnar og Forseta Íslands, sem styrkir efnalitlar konur til náms með greiðslu skólagjalda og námsbóka. 

Heilsuhelgi með Söru

Sara Snædís Ólafsdóttir heilsuþjálfari og eigandi Withsara og Elísabet Gunnarsdóttir athafnakona sameinuðu krafta sína með skipulagningu á sólarhrings heilsuferð fyrir konur (e. Wellness Retreat) á Hótel Geysi síðastliðna helgi.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður birti skemmtilegar myndir frá helginni. Það var greinilega mikið að gera hjá henni í vikunni, þar sem hún fór einnig í heimsókn á Bessastaði.

Mögulegir flutningar

Kærustuparið Helgi Ómarsson og Pétur Björgvin Sveinsson tóku íbúðina í gegn áður en þeir sýndu mögulegum kaupendum eignina.

Draumalíf í Asíu

Vinkonurnar Ísabella Ósk, dóttir Bubba Morthens, og vinkona hennar Birna Mjöll, lifa sínu besta lífí á ferðalagi um Asíu.

Sumar í London

Förðunarfræðingurinn og TikTok súperstjarnan Embla Wigum er tilbúin fyrir breska sumarið.

Barnalán

Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, og Brooks Laich, fyrrverandi hokkíleikmaður, eiga von á sínu fyrsta barni í haust. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni

Sumarið gekk formlega í garð síðastliðinn fimmtudag og heiðraði landsmenn með sólríkum degi. Stjörnur landsins skinu skært um helgina hvort sem það var í miðborg Reykjavíkur eða á ferðalögum erlendis. Þá er skemmtanalífið farið að færast í aukana með hækkandi sól og hitastigi.

Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife

Páskarnir eru nú að baki og voru fylltir súkkulaðiáti, sólarsælu og öðrum notalegheitum. Stjörnur landsins nutu hátíðarinnar til hins ýtrasta eins og þeim einum er lagið, hvort sem það var í fríi erlendis, á skíðum fyrir norðan eða í veðurblíðunni í borginni.

Stjörnulífið: Skvísurnar stálu senunni

Páskarnir eru á næsta leiti og eru margir þegar farnir í frí, hvort sem það er í sólina erlendis eða í kyrrðina í íslenskri sveitasælu. Stjörnur landsins skinu skært eins og þeim einum er lagið og fögnuðu ýmsum tímamótum í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.