Viðskipti innlent

Ríkið hafi fram­selt Heinemann ein­okun

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Vísir/Stefán

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir fjármálaráðherra haldinn reginmisskilningi og segir íslenska ríkið hafa framselt Heinemann einokunarstöðu á Keflavíkurflugvelli.

Líkt og fram hefur komið mun þýska fyrirtækið Heinemmann taka á næstu vikum við rekstri fríhafnarinnar. Það var valið eftir útboðsferli um sérleyfi til reksturs verslunarinnar í fyrra. Félag atvinnurekenda hefur lýst miklum áhyggjum sínum af því að nýr rekstraraðili hafi krafið framleiðendur um að lækka vöruverð.

Hefur engar áhyggjur af íslenskum birgjum

Í kvöldfréttum Stöðvar tvö á fimmtudag sagði Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda að Heinemann hefði sett sig í samband við íslenska birgja og krafið þá um að lækka verð verulega vilji þeir halda áfram að selja vörur sínar á flugvellinum. Hann sagði þetta ekki gert í því skyni að lækka verð til neytenda heldur vilji Heinemann auka eigin framlegð.

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki hafa áhyggjur af íslenskum framleiðendum með vörur til sölu í fríhöfninni. Mikil samkeppni ríki um aðgengi að hillum fríhafnarinnar og ekkert óeðlilegt sé við það.

„Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda,“ sagði hann í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

Einokun án hamla

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, brást við þessum ummælum fjármálaráðherra í færslu á samfélagsmiðlum í dag.

„Fjármálaráðherrann virðist haldinn einhverjum reginmisskilningi í þessu máli. Hann talar um að ríkið eigi ekki að skekkja samkeppni og í „markaðshagkerfi“ verði menn „bara að synda“. Íslenzka ríkið hefur framselt einkafyrirtæki einokunar- og yfirburðastöðu á Keflavíkurflugvelli án þess að hafa, að því er virðist, sett nokkrar hömlur á það hvernig hún er notuð,“ segir hann.

Hann segist eiga bágt með að trúa því að eðlileg markaðslögmál og heilbrigð samkeppni séu þarna að verki.

„En við í litla atvinnurekendafélaginu erum búin að biðja um fund með honum og getum þá kannski útskýrt þetta betur,“ segir Ólafur.


Tengdar fréttir

„Þetta er ömur­leg staða“

Íslenskir framleiðendur eru milli steins og sleggju vegna krafa nýs rekstraraðila Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli að sögn framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rekstraraðilinn setji fyrirtækjum afarkosti um að lækka verð sitt gríðarlega.

Á milli steins og sleggju Heinemann

Nú styttist í að þýzka fyrirtækið Heinemann taki formlega við rekstri Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli, eftir að hafa unnið útboð á vegum opinbera hlutafélagsins Isavia. Undirritaður hefur áður fjallað hér á Vísi um það hvernig Heinemann virðist nú þegar, við undirbúning innkaupa á vörum fyrir Fríhöfnina, ganga gegn útboðsskilmálunum.

Ekki brugðist við tilmælum SKE í þrjú ár

Samkeppniseftirlitið hefur tekið við ábendingu er varðar fyrirkomulag Heinemann gagnvart íslenskum birgjum og skoðar hvort að tilefni sé til að bregðast við. Mikil vonbrigði séu að Isavia hafi ekki brugðist við tilmælum stofnunarinnar í þrjú ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×