Lífið

Komast ekki á­fram nema þeir séu á skjánum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Krakkarnir í Væb á dómararennslinu í gær.
Krakkarnir í Væb á dómararennslinu í gær. Getty/Jens Büttner

Fyrirkomulaginu um hvernig tilkynnt er hverjir komast áfram af undanúrslitakvöldi Eurovision hefur verið breytt lítillega í ár. Til að fanga viðbrögð þeirra sem komast áfram kemst atriði ekki áfram nema það sé á skjánum þegar verið er að tilkynna úrslitin.

Síðustu ár hefur það verið þannig að á meðan kynnarnir ræða saman og byggja upp spennu fyrir því hvert næsta atriði sem kemst áfram er, flakkar myndavélin á milli keppenda að handahófi. Með því fyrirkomulagi var erfiðara að fanga raunveruleg viðbrögð þeirra sem komast áfram.

Nú verður það þannig að þegar tilkynnt er um atriðin sem komast áfram verða þrjú atriði á skjánum í svokölluðu þrísplitti, sem þýðir að þrír rammar verða á skjánum með viðbrögðum þriggja atriða.

Mynd segir meira en þúsund orð og hér sést skólabókardæmi um þrísplitt. Skiptum fréttamönnunum þremur út fyrir Eurovision-keppendur í græna herberginu og þá sjáið þið þetta fyrir ykkur.

Eitt af þessum þremur atriðum á skjánum er næsta land sem kemst áfram. Keppendur geta því fullvissað sig um að þeir séu ekki næstir áfram ef þeir eru ekki á skjánum, eingöngu þeir sem eru í þessu þrísplitti gætu verið næsta lag áfram. Algóriþmi velur atriðin og sér til þess að ekkert land birtist í þrísplittinu oftar en þrisvar. Hann velur atriðið sem kemst næst áfram og svo tvö önnur. 

Þetta á þó eingöngu við um fyrstu níu tilkynningarnar, og þegar tilkynnt er um síðasta atriðið sem fer áfram verður notast við gamla fyrirkomulagið. Keppendur þurfa því ekki að örvænta þó að þeir séu ekki komnir áfram þegar búið er að sýna þá þrisvar. 


Tengdar fréttir

Form­leg spá og ítar­leg greining á kepp­endum kvöldsins

Væb-strákarnir stóðu sig óaðfinnanlega á dómararennsli fyrra undankvölds Eurovision í gærkvöldi. Líkurnar á að þeir komist áfram hafa aukist eftir framkomuna og þegar æft var hvernig stigin eru tilkynnt komust þeir áfram. 

Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku

Væbbræður, þeir Matthías og Hálfdán, eru að eigin sögn sjúklega spenntir fyrir morgundeginum þegar þeir stíga fyrstir allra á stokk í fyrri undankeppni Eurovision. Þeir eru hæstánægðir með að vera fyrstir og lofa veislu.

Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram

Ísland er talið eiga fjörutíu prósent líkur á að komast áfram upp úr fyrri undankeppni Eurovision annað kvöld. Líkurnar hafa aukist hægt og rólega síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.