Körfubolti

Reiknar ekki með Shaq í odda­leiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“

Aron Guðmundsson skrifar
Shaquille Rombley þurfti að fara af velli og á sjúkrahús í fjórða leik Stjörnunnar og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í gær.
Shaquille Rombley þurfti að fara af velli og á sjúkrahús í fjórða leik Stjörnunnar og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í gær. Vísir/Skjáskot

Þjálfari Stjörnunnar gerir ekki ráð fyrir því að Shaqu­il­le Rom­bl­ey, leik­maður liðsins, verði með í odda­leik úr­slita­ein­vígis Bónus deildarinnar í körfu­bolta en sá var fluttur af velli á sjúkra­hús í gær og undir­gengst frekari rannsóknir í dag.

Rom­bl­ey þurfti þurfti að fara af velli í öðrum leik­hluta í leik Stjörnunnar og Tindastóls í úr­slitum Bónus-deildarinnar sem lauk með sigri Stjörnunnar sem með því knúði fram oddaleik. 

Rom­bl­ey var í kjölfarið fluttur á sjúkra­hús eftir að hafa fengið læknisað­stoð í Ás­garði. Í hálfleik voru áhorfendur beðnir um að gefa sjúkraflutningamönnum pláss til að athafna sig og áhorfendur sendir út um útgang á bakhlið Ásgarðs.

Rombley hafði átt í öndunar­erfið­leikum yfir daginn en við skoðun í gær komu í ljós ein­hver vand­kvæði í tengslum við nýru hans og gengst hann undir frekari rannsóknir í dag.

„Ég fór og hitti hann í gær eftir leikinn,“ segir Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar í sam­tali við Vísi. „Það er ein­hvers konar vesen með nýrun hjá honum og hann er bara í rannsóknum í dag. Það voru ein­hver gildi sem voru ekki nógu góð í tengslum við nýrum. Ég svo sem er ekki læknir og get ekki upp­lýst þetta eitt­hvað meira en það.“

Rom­bl­ey hafi verið brattur þrátt fyrir allt.

„Hann var góður, jákvæður þrátt fyrir það sem á undan hafði gengið.“

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari StjörnunnarVísir/Hulda Margrét

Stutt er á milli leikja í úr­slita­ein­víginu og odda­leikurinn um Ís­lands­meistara­titilinn fer fram í Síkinu á mið­viku­daginn.

Ertu að gera ráð fyrir honum í odda­leiknum?

„Eins og staðan er núna gera ég ekki ráð fyrir honum. Ef hann verður með þá er það bara bónus.“

Aðrir þurfa að stíga upp líkt og var raunin í leik fjögur í gær þar sem að Stjörnu­menn náðu að vinna sig aftur inn í leikinn án Rom­bl­ey og sigla heim sigri eftir að hafa verið undir lengi vel.

„Það er karakter í þessu liði, Bjarni og Viktor áttu góða inn­komu og sömu­leiðis Hlynur. Þetta eru bara menn sem þurfa að stíga upp og fylla hans skarð.“

Odda­leikur fram­undan, fjórða árið í röð sem það er raunin í úr­slita­ein­vígi efstu deildar karla.

„Bara gleði og gaman. Það er ekkert annað, gaman að taka þátt í þessu. Þetta verður bara leikur fimm, leðju­slagur.“

Baldur er búinn að fara yfir leik gærkvöldsins.

„Ég fór yfir leikinn þegar að ég kom heim og sofnaði um tvö leitið. Ég er ánægður með það hvað menn héldu fókus og voru ekki að fara yfir um þrátt fyrir að Stólarnir hafi átt góðan kafla. Vel gert hjá þeim að halda sér inn í hlutunum.“

Oddaleikur Tindastóls og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta fer fram í Síkinu á Sauðárkróki á miðvikudaginn kemur. Leikurinn hefst klukkan átta og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 


Tengdar fréttir

Benedikt: Hugsanlega breyta viðtöl línum í dómgæslu

Benedikt Guðmundsson þjálfari Tindastóls gat verið svekktur með úrslit leiksins þegar lið hans laut í gras fyrir Stjörnunni í leik nr. 4 um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn endaði 91-86 fyrir Stjörnuna og Benni þarf að gíra liðið sitt upp fyrir oddaleik.

„Við máttum ekki gefast upp“

Jase Febres var einn af þeim sem leiddu áhlaupið sem skiluðu sigri Stjörnunnar í leik númer fjögur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Hann skoraði 24 stig, hvert öðru mikilvægara, en þau komu öll í seinni hálfleik til að skila sigri Stjörnunnar 91-86 gegn Tindastól.

Rom­bl­ey fluttur á sjúkra­hús með sjúkra­bíl

Shaquille Rombley leikmaður Stjörnunnar þurfti að fara af velli í leik Stjörnunnar og Tindastóls í úrslitum Bónus-deildarinnar. Rombley var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fengið læknisaðstoð í Ásgarði.

Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan

Fjórði úrslitaleikur Stjörnunnar og Tindastóls er í gangi í Ásgarði þessa stundina. Hlynur Bæringsson fékk óíþróttamannslega villu í fyrri hálfleiknum sem gerði hörðustu stuðningsmenn Tindastóls sótilla.

„Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“

Hilmar Smári Henningsson var ósáttur með sína frammistöðu í seinni hálfleik í síðasta leik og segir Stjörnuna hafa átt skilið tap gegn Tindastóli í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla. Hann settist niður með Stefáni Árna Pálssyni og ræddi fjórða leik liðanna sem er framundan í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×