Greip í hár mótherja og kippti til og frá Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2025 07:32 Kayla Fischer missti stjórn á skapi sínu í leiknum við Angel City og er á leið í bann. Getty/Al Sermeno Bandaríska knattspyrnukonan Kayla Fischer á yfir höfði sér bann eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu í leik gegn Angel City, nýja liðinu hennar Sveindísar Jane Jónsdóttur, og kippt með grófum hætti í hár andstæðings.
Fischer var nýbúin að leggja upp mark fyrir Racing Louisville og koma liðinu í 3-1 gegn Angel City, í bandarísku úrvalsdeildinni, þegar hún greip um hár Madison Hammond og togaði hana til og frá þannig að hún kastaðist í jörðina. Atvikið má sjá hér að neðan. Boltinn var hvergi nálægur þegar Fischer beitti Hammond þessu ofbeldi en eftir skoðun á myndbandi sýndi dómarinn henni rautt spjald auk þess að dæma vítaspyrnu. Alyssa Thompson skoraði úr vítinu og minnkaði muninn í 3-2 en þrátt fyrir liðsmuninn voru ekki fleiri mörk skoruð og Racing fagnaði sigri. Liðin eru þar með jöfn að stigum í 7.-8. sæti. Samkvæmt frétt USA Today fær Fischer sjálfkrafa eins leiks bann en má eiga von á lengra banni eftir skoðun aganefndar. Leikurinn um helgina var sá fyrsti sem Angel City spilar eftir að félagið tilkynnti að það hefði samið við Sveindísi. Hún er hins vegar ekki komin með leikheimild og spilar ekki með liðinu fyrr en eftir landsleikina mikilvægu sem Ísland spilar á næstunni, við Noreg 30. maí og Frakkland 3. júní.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Sjá meira