Bíó og sjónvarp

Amatörar, hvalfirskur bóndi og bar­átta við borgina verð­launuð

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Verðlaunahafar Einarsins, Ljóskastarans og Skjöldunnar með verðlaunagripi sína.
Verðlaunahafar Einarsins, Ljóskastarans og Skjöldunnar með verðlaunagripi sína. Patrik Ontkovic

Heimildamyndirnar Bóndinn og verksmiðjan, Paradís amatörsins og Ósigraður voru verðlaunaðar á Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda sem fór fram í átjánda sinn um helgina.

Skjaldborgarhátíðin fer fram á Patreksfirði árlega um hvítasunnuhelgina. Hátíðin hófst á föstudagskvölf og lauk í nótt á lokaballi hátíðarinnar þar sem Inspector spacetime skemmtu gestum.

Heiðursgestur hátíðarinnar var ítalski leiktjórinn Alessandra Celesia og voru tvær myndir eftir hana sýndar. Þá sýndi Kvikmyndasafn Íslands óséðar perlur frá Patreksfirði, bæði plokkfiskveisla kvenfélagsins Sifjar og fiskiveisla kokksins Gísla Ægis voru á sínum stað og Skjaldborgarbíó var þétt setið.

Þrjár heimildamyndir voru verðlaunaðar í þremur flokkum á hátíðinni auk þess sem áhorfendaverðlaunin Ásgeirinn, sem heita í höfuðið á menningarsmyglaranum Ágeiri H. Ingólfssyni sem lést fyrr á árinu, voru veitt í fyrsta sinn og hlaut Beate Rosskopf þau.

Barátta bónda við kerfið

Bóndinn og verksmiðjan hlutu Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2025, með afgerandi kosningu. 

Bóndinn og verksmiðjan er eftir Braga Guðmundsson og Hrafnhildi Gunnarsdóttur og fjallar um baráttu bónda í Hvalfirði.

Myndin fjallar um baráttu bónda í Hvalfirði við kerfið og afhjúpar máttvana stjórnsýslu og hreðjatök stóriðju á stjórnvöldum og sveitarfélagi. Í myndinni er leitast við að ná fram réttlæti fyrir bóndann og hrossin hennar.

Leikstjórar eru Barði Guðmundsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir og framleiðendur eru Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Krumma Film.

Verðlaununum fylgir verðlaunafé frá tækjaleigunni Kukl, Trickshot og Phantom hljóðeftirvinnslufyrirtæki verðlaunafé að verðmæti 900 þúsund króna.

Fjórir amatörar á Youtube

Paradís amatörsins hlaut Ljóskastarann, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar 2025 fyrir mynd í fullri lengd hlaut. Í myndinni deila íslenskir karlmenn úr fjórum kynslóðum eigin lífi á YouTube - frá óperusöng í stofunni heima til fjölskyldumyndbanda og einlægra játninga.

Leikstjóri myndarinnar er Janus Bragi Jakobsson og framleiðendur eru Tinna Ottesen og Stefnuljós.

„Kvikmyndin er einlæg, áhugaverð, gamansöm og eftirminnileg saga sem heillaði dómnefndina upp úr skónum. Hún býður upp á listræna sýn höfundar um hvernig það er að vinna með sögur annarra sem áður hafa birst á opinberum vettvangi,“ sagði um myndina í umsögn dómnefndar.

Verðlaununum fylgir verðlaunafé frá tækjaleigunni Kukl, Trickshot og Phantom hljóðeftirvinnslufyrirtæki verðlaunafé að verðmæti 900 þúsund króna.

Faðir í baráttu við báknið og sjálfan sig

Heimildastuttmynd Ósigraður hlaut Skjölduna, dómnefndarverðlaun Skjaldborgar 2025 fyrir bestu heimildastuttmynd. Leikstjóri er Jóna Gréta Hilmarsdóttir.

Myndin fjallar um Hilmar Pál Jóhannesson, föður leikstjórans, en eftir áralangt mál við Reykjavíkurborg vegna lóðar í Gufunesi finnur hann sig í stöðugri baráttu við borgina og sjálfan sig.

„Kvikmyndin býður upp á skýra rödd höfundar á verki sem hefst á óréttlæti manns sem ætlar sér að sigra báknið. En í raun er sagan um samband sem skilur áhorfandann eftir með ákveðnar spurningar og flóknar tilfinningar. Höfundur vílar sér ekki við að móta söguframvinduna með skemmtilegum og afhjúpandi augnablikum. Eftir stendur áhugaverður kvikmyndalistamaður sem á framtíðina fyrir sér í greininni,“ segir í umsögn dómnefndar.

Skjöldunni fylgir verðlaunafé frá tækjaleigunni Kukl að verðmæti 250 þúsund og háhraða vinnsludiskur frá Sensor Films. 

Dómnefnd Skjaldborgar 2025 var skipuð þeim Ásu Baldursdóttur, dagskrárstjóra Bíó Paradísar, Maks Piłasiewicz, hátíðadagskrárgerðarmanni og framleiðanda, og Sighvati Ómari Kristinssyni, klippara.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.