Lífið

Ævin­týra­legt brúð­kaup Sverris Inga og Hrefnu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sverrir Ingi og Hrefna Dís giftu sig á dögunum í Grikklandi.
Sverrir Ingi og Hrefna Dís giftu sig á dögunum í Grikklandi.

Landsliðsmaðurinn Sverri Ingi Ingason og Hrefna Dís Halldórsdóttir samkvæmisdansari giftu sig við glæsilega athöfn í Aþenu í Grikklandi. Brúðkaupið fór fram undir berum himni og var ævintýri líkast.

Hrefna Dís og Sverrir búa í Grikklandi, þar sem Sverrir spilar með Panathinaikos. Hjónin hafa verið saman í rúman áratug og eiga tvö börn, Emilíu Rós, fædda árið 2019, og Jóhann Alex, fæddan árið 2023.

Brúðkaupið fór fram þann 19. júní síðastliðinn á Hatzi Mansion, vinsælum veislustað í hjarta gríska landbúnaðarlandsins í Anavyssos, rétt utan við Aþenu. Umhverfið er afar rómantískt, þar sem fallegur garður, gróskumikið landslag og stórkostlegt útsýni yfir Saroníska flóa skapa draumkennda stemningu.

Elegans alla leið

Hrefna Dís klæddistglæsilegum hvítum hlýralausum brúðarkjól með sítt hvítt brúðarslör í hárinu. Sverrir klæddist svörtum jakkafötum og hvítri skyrtu. 

Meðal gesta voru Ástrós Trausta, Hörður Björgvin Magnússon, Sara Björk Gunnarsdóttir, Rúrik Gíslaso, Aron Einar Gunnarsson, Alfreð Finnbogason, Jóhann Berg Guðmundsson og Guðlaugur Victor Páls­son.

Í brúðkaupinu skemmtu Steindi Jr. og Auddi gestum eins og þeim einum er lagið. Um kvöldið tók Doctor Victor við keflinu og spilaði fyrir dansi langt fram á nótt.

Kvöldið fyrir brúðkaupið var gestum boðið á strandveitingastaðinn Krabo Beach þar sem gestir hvoru hvattir til að klæðast hvítum fötum. Þar spilaði tónlistarmaðurinn Jökull í Kaleo fyrir gesti og setti tóninn fyrir helginni sem var umvafin gleði og elegans líkt og eftirfarandi myndir gefa til kynna.

Instagram/Ástrós Trausta
Instagram/Rúrik
Instagram/Móeiður
Instagram/Ástrós Trausta
Instagram/Sara Björk
Instagram/Móeiður
Instagram/Móeiður
Instagram/Ástrós Trausta
Instagram/Sara Björk
Instagram/Móeiður
Instagram/Ástrós Trausta
Instagram/Móeiður
Instagram/Móeiður
Instagram/Móeiður
Ástrós klæddist glæsilegum grænum síðkjól í brúðkaupinu.Instagram/Ástrós Trausta
Instagram/Móeiður
Instagram/Ástrós Trausta

Hvítur klæðnaður við ströndina

Hér að neðan smá sjá myndir frá kvöldinu fyrir brúðkaupið.

Instagram/Sara Björk
Instagram/Sara Björk
Instagram/Sara Björk
Fyrirpartýið daginn áður.Instagram/Ástrós Trausta
Instagram/Adam Helgason
Instagram/Adam Helgason
Instagram/Adam Helgason
Instagram/Árni Vill
Instagram/Ástrós Trausta






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.