Innlent

Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr hús­næðinu

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Gunnar Smári Egilsson var aðalmótorinn í Sósíalistaflokki Íslands fram að hallarbyltingunni á aðalfundi flokksins í maí.
Gunnar Smári Egilsson var aðalmótorinn í Sósíalistaflokki Íslands fram að hallarbyltingunni á aðalfundi flokksins í maí. Vísir/Anton Brink

Ný stjórn Sósíalistaflokks Íslands hefur sent tölvupóst til félaga þar sem fullyrt er að fyrrverandi framkvæmdastjórn flokksins hyggist tæma algerlega sjóði flokksins og hlaupa með þá burt. Einnig vilji hún rukka nýja stjórn afturvirkt um endurreiknað markaðsverð leigu fyrir húsnæði flokksins, og krefjist þess að ný stjórn rými húsnæðið fyrir 15. júlí næstkomandi.

Í tölvupóstinum segir að félagið Vorstjarnan, sem skilja má sem svo að hafi haldið utan um rekstur Sósíalistaflokksins, sýslað með peninga flokksins og borgað meðal annars fyrir húsnæðisleigu og rekstur Samstöðvarinnar, lúti skuggastjórn fyrrverandi stjórnenda flokksins.

Sagt er að fyrrverandi stjórn flokksins hafi boðað aðalfund, sem ný stjórn segir ólöglegan, í Vorstjörnunni á mánudaginn næstkomandi. Fullyrt er að fyrir liggi hótanir fyrrverandi stjórnar um að nema á brott fjármagni flokksins og úthýsa flokknum úr eigin húsnæði.

„Við munum ekki leyfa því að gerast,“ segir ný stjórn í tölvupóstinum.

Höfnuðu sáttarboði nýrrar stjórnar

Enn fremur segir að fyrrverandi framkvæmdastjórn hafi hafnað sáttarboði nýju stjórnarinnar, sem ný stjórn bauð þeirri gömlu með milligöngu lögfræðinga.

„Þar var þess krafist að peningum sem teknir voru í óleyfi af reikningum flokksins eftir aðalfund yrði skilað. Að öðru leyti myndi Vorstjarnan áfram borga leigu húsnæðisins og engir frekari eftirmálar yrðu af málinu.“

„Þess í stað hafa þau meðal annars krafist þess að flokkurinn greiði Vorstjörnunni hátt í 20 milljónir af ríkisstyrk flokksins og dráttarvexti, að flokkurinn borgi endurreiknað „markaðsverð“ leigu „afturvirkt“ og loks að „SÍ rými húsnæðið fyrir 15. júlí nk,“ segir í tölvupóstinum.

Þá segir að fyrrverandi stjórn ætli að „tæma algerlega alla sjóði flokksins, hlaupa á burt með þá undir sinni skuggastjórn og gera flokkinn heimilislausan.“

Nýkjörin stjórn flokksins segist ekki taka þetta í mál og hvetur alla félaga til að mæta á boðaðan aðalfund Vorstjörnunnar 30. júní næstkomandi.


Tengdar fréttir

Sósíalistar tortími mögulega sjálfum sér

Stjórnmálafræðingur segir að Sósíalistar komi til með að tortíma sjálfum sér ef hallarbylting á aðalfundi Sósíalistaflokksins í gær verði til þess að bola langvinsælasta meðlimi flokksins á brott. Hann líkir því við pólitískt sjálfsvíg. Innanbúðar erjur hafi áhrif á mögulegt samstarf með öðrum flokkum.

Frystir Face­book hópinn og rýfur tengsl við Sósíalista­flokkinn

Gunnar Smári Egilsson hefur sett þá sem mest hafa tjáð sig á undanförnum dögum inni á spjallsíðunni Rauða þræðinum í einskonar straff. Hann er sjálfur stjórnandi hópsins, sem áður bar nafnið Sósíalistaflokkur Íslands og hefur þjónað sem nokkurs konar spjallvettvangur fyrir kjósendur flokksins og annarra áhugasamra. Gunnar segir að tími sé kominn til að slíta öll tengsl hópsins við flokkinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×